Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól

Júlíus Valsson skrifar:
Haustið kemur snemma í Seyðisfjörð. Fjöllin eru há og fjörðurinn þröngur, og þegar sólin lækkar hverfur hún bak við fjallsbrúnirnar löngu áður en hún sest annars staðar. Seyðfirðingar hafa lært að lifa með þessu. Þeir hafa líka lært að lifa með fjöllunum sjálfum, sem eru ekki alltaf til friðs, eins og desember 2020 minnti á. Það sem reynist erfiðara er að treysta orðum stjórnmálamanna, og hver getur láð þeim það.
Hinn 11. september fékk Kaldvík rekstrarleyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í opnum sjókvíum í firðinum, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi. Kvíarnar eiga að rísa í Sörlastaðavík, Selstaðavík og Skálanesbót. Þar með lauk ferli sem hófst 2014 og sex ára baráttu heimamanna, að minnsta kosti í bili.
Fánarnir á framboðsfundinum
Fyrir síðustu alþingiskosningar voru frambjóðendur spurðir um sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Þeir voru beðnir að lyfta fána. Allir nema tveir sögðust andvígir eldinu. Fulltrúar allra flokkanna sem nú sitja í ríkisstjórn voru í þeim hópi.
Síðan hefur ekkert verið gert sem hefði komið í veg fyrir leyfið. Engin lög, engin bráðabirgðaákvæði, engin friðun. Heildarfrumvarp um lagareldi dagaði uppi í vor og er nú ekki á þingmálaskrá. Atvinnuvegaráðherra kennir greininni sjálfri um að málið hafi strandað. Það er sérkennileg staða fyrir ríkisstjórn að geta ekki sett lög vegna þess að fiskeldisfyrirtækin voru ekki sammála! Hverja er verið að blekkja?
Ráðherrarnir eru vissulega miður sín. Það sést á þeim. En Alþingi hefur alltaf getað tekið af skarið um einstakan fjörð, rétt eins og um friðlýsingar, virkjanir og vegstæði. Sorgarviðbrögð í fjölmiðlum eftir á er mun ódýrari lausn en að beita valdinu fyrr með heiðarlegum og réttum hætti.
Það sem íbúarnir sögðu
Árið 2021 höfðu 55 prósent íbúa skrifað undir yfirlýsingu gegn sjókvíaeldi. Tveimur árum síðar sýndi Gallup að 75 prósent Seyðfirðinga voru á móti. Um þrettán þúsund manns hafa nú skrifað undir mótmælalista VÁ. Skipulagsstofnun lýsti andstöðunni sem fordæmalausri.
Sveitarstjóri Múlaþings hefur hins vegar upplýst að sveitarfélagið komi ekki að ákvörðuninni og taki ekki afstöðu. Þegar Seyðisfjörður gekk inn í Múlaþing var lofað íbúalýðræði og sérstöðu bæjarkjarnanna. Nú virðist það lýðræði ná að netlögum og ekki metra lengra.
Rökin sem enginn svaraði
Barátta Seyðfirðinga hefur verið rekin með lögfræðiálitum, umsögnum og athugasemdum sem hefðu líklega stöðvað framkvæmd í flestum öðrum málaflokkum.
Hafrannsóknastofnun hefur staðfest að eldissvæðið í Sörlastaðavík uppfylli ekki ákvæði um fimm kílómetra fjarlægð frá ósum Fjarðarár. Leyfið byggir jafnframt á áhættumati erfðablöndunar sem andstæðingar telja úrelt.
Í Selstaðavík er gert ráð fyrir kvíum á C-svæði vegna ofanflóða, þar sem atvinnustarfsemi á ekki að vera. Áhættumatið vegna slysasleppinga var keypt af fyrirtækinu sjálfu og samkvæmt formanni VÁ tók Matvælastofnun sér hálfan dag til að fara yfir það. Í bæ þar sem skriður hafa tekið hús er það næsta ótrúlegt.
Seyðisfjarðarhöfn er jafnframt grunnnetshöfn, skemmtiferðaskip hafa leitað vars í víkunum og um fjörðinn liggur Farice-sæstrengurinn, ein helsta fjarskiptatenging landsins við umheiminn.
Ekkert af þessu dugði.
Tvenns konar náttúruvernd
Á Íslandi gilda í reynd tvö kerfi náttúruverndar.
Í öðru þeirra gilda náttúruverndarlög. Þar er varúðarreglan lögfest, mengunarbótaregla gildir og friðlýsingum verður ekki aflétt með pennastriki.
Í hinu gilda hins vegar lög um fiskeldi. Þar er markmiðið uppbygging greinarinnar. Varúðarreglan er hvergi nefnd. Í hennar stað kemur reiknilíkan sem segir hversu mikil innblöndun eldislax í villta stofna teljist ásættanleg. Friðunarsvæði eru ákveðin með auglýsingu ráðherra og skipulag fjarðanna staðfest í ráðuneyti, fjarri þeim sem þar búa.
Það segir sína sögu að umhverfisráðherra hafi þurft að kanna hvort lög um umhverfisábyrgð eigi yfirhöfuð við þegar eldislax sleppur. Enginn virðist vita hver ber ábyrgðina þegar illa fer. Hitt vita allir hver fær leyfið þegar vel gengur.
Ef landeigandi hygðist reisa verksmiðju á snjóflóðasvæði, við ós laxveiðiár, í óþökk þriggja af hverjum fjórum nágrönnum og með áhættumat sem hann hefði sjálfur keypt, yrði honum líklega vísað frá. Í Seyðisfirði er þessu snúið við, vegna þess að framkvæmdin fer fram í sjó og heitir „eldi“.
Hver ber byrðarnar
Kaldvík skilaði 29,6 milljóna evra rekstrartapi á fyrri helmingi ársins. Seyðfirðingum var lofað sex til átta störfum, en brunnbátar gera mannaflaþörf í landi æ minni.
Á móti stendur samfélag sem hefur byggt sig upp með ferðaþjónustu, listum og menningu. Skipulagsstofnun benti sjálf á neikvæð áhrif eldisins á ferðaþjónustu. Það er með ólíkindum að ríkisvaldið taki áhættuna af þessu samfélagi til að bæta rekstrarstöðu fyrirtækis í vanda.
Línan í firðinum
Haustið 2024 komu Seyðfirðingar saman í Herðubreið og drógu táknræna línu yfir fjörðinn. Þetta var friðlýsing fólksins, gerð af því að ríkið vildi ekki gera hana sjálft.
Þeir stjórnmálamenn sem lyftu fánum fyrir kosningar geta enn staðið við orð sín. Alþingi getur sett lög sem taka Seyðisfjörð undan eldinu.
Það þarf aðeins viljann.
Hann hefur hingað til reynst jafn torfundinn og sólin í Seyðisfirði í desember.
Höfundur er læknir og andstæðingur fiskeldis i sjó.