Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir sá heldur betur eftir því þegar hún opnaði dós af útrunnum Nocco drykk.„Búin að geyma þennan Nocco Rúdólf í ísskápnum í vinnunni í sex ár. Hann var útrunninn árið 2020, fékk þessa fallegu gjöf frá vinkonu minni, Birgittu Líf, sem fann hann í geymslunni sinni og hugsaði til mín,“ skrifaði Magnea við myndbandið, en í sjálfu myndbandinu segir hún ekki mikið. Hún kúgaðist svo hressilega að hún kom vart upp orði. Sjáðu myndbandið hér að neðan.
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið