Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) birti nýsköpunarvísitölu ársins 29. september. Ísland er í 26. sæti, niður úr 24. í fyrra, og neðst Norðurlandanna: Svíþjóð í öðru sæti, Finnland í áttunda, Danmörk í níunda, Noregur í tuttugasta og fyrsta. Árið 2021 vorum við í 17. sæti. Hugverkastofa rifjar upp að árið 2010 var Ísland í fyrsta sæti þessa lista og 2016 í því þrettánda. Aðferðafræðin hefur breyst á leiðinni, en stefnan er ekki umdeilanleg. Við höfum verið á leiðinni niður í sextán ár.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta