Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna í Svíþjóð hefur fengið umboð á ný til að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð. Andreas Norlén forseti sænska þingsins tilkynnti þetta í morgun.
Andersson fékk umboðið strax eftir kosningar en skilaði því á mánudag þar sem henni tókst ekki að mynda stjórn sem hefði tilskilinn meirihluta á þinginu. Þingforsetinn hefur síðan þá rætt við leiðtoga allra flokka á þingi.
Norlén segir að stjórnarmyndunarviðræður hefjist formlega á mánudaginn og að Andersson verði að upplýsa forsetann um stöðuna í mesta lagi viku síðar.
Margir bjuggust við að Ulf Kristersson leiðtogi Moderaterna og fráfarandi forsætisráðherra fengi næst umboðið. Norlén sagði spurður um það að aðstæður á þingi og í stjórnmálunum væru nákvæmlega þær sömu og þegar Andersson fékk umboðið í fyrra skiptið. Þar vísar hann væntanlega í að vinstri blokkin, sem Andersson tilheyrir, er með meirihluta á þinginu eftir kosningarnar.