Evrópusambandið mótmælir harðlega áformum Bandaríkjastjórnar um útflutningsbann á dísilolíu. Slíkt geti rýrt traust á Bandaríkjunum sem viðskiptavini.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í gær að til greina kæmi að hætta útflutningi á dísilolíu til að lækka verðið heima fyrir. Hann hvatti á sama tíma Evrópuríki til að koma varabirgðum á markað.
Verð á dísilolíu er nú hærra en nokkru sinni, að stórum hluta vegna stríðsins í Íran sem hefur staðið yfir frá því í lok febrúar. Það gæti reynst Donald Trump forseta Bandaríkjanna og Repúblikanaflokknum erfitt í þingkosningunum sem fara fram í byrjun næsta mánaðar.
Opnir fyrir að setja birgðir á markað
„Við höfnum alfarið nokkru banni á dísil. Slíkt bann kæmi engum til góða. Það myndi grafa undan trausti okkar á Bandaríkjunum sem áreiðanlegum samstarfsaðila,“ sagði Anna-Kaisa Itkonen fjölmiðlafulltrúi framkvæmdastjórnar ESB í morgun. Sambandið lýsti sig aftur á móti reiðubúið til að koma varabirgðum á markað í samstarfi við Alþjóðaorkumálastofnunina.
Stofnunin sagði fyrr í vikunni að Evrópusambandslönd ættu enn eftir að setja á markað þriðjung þeirra olíubirgða sem þau höfðu lofað í mars.
Emmanuel Macron forseti Frakklands mótmælti einnig áætlunum um útflutningsbann í morgun og hvatti G7-ríkin til að vinna saman að lausn.
Macron ræddi við Trump í gær og lagði áherslu á að samstarf án útflutningstakmarkana þjónaði hagsmunum ríkjanna best.
Mörg ríki reiða sig á dísilolíu frá Bandaríkjunum, ekki síst í Evrópu. Því myndi útflutningsbann koma þeim sérstaklega illa. Sérfræðingar segja að ef af því yrði myndi það lækka verð í Bandaríkjunum en hækka það annars staðar.