Fjarskiptastofa vinnur að tilmælum um prófun á virkni neyðarsímtala í 112 áður en símar eru settir á markað á Íslandi. Tilmælin ná til innflytjenda og seljenda farsíma og stofnunin óskar eftir samráði við þá.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarskiptastofu.
Ástæðu þessarar ráðstöfunar má rekja til þess að einhverjir farsímar ná ekki tengingu við neyðarnúmerið 112 eftir að slökkt var á 2G- og 3G-farsímakerfunum á Íslandi.
Símarnir ná að öðru leyti almennri farsímaþjónustu og fullnægja reglum um CE-merkingu.
„Vegna þessa hefur Fjarskiptastofa sett saman drög að tilmælum um prófun allra farsíma sem seldir verða hér á landi framvegis. Fjarskiptastofa skorar á alla þá sem telja sig mál þetta varða að koma með athugasemdir við drögin og það sem betur mætti fara,“ segir í tilkynningu.
Samkvæmt lögum um fjarskipti skulu tæki uppfylla viðeigandi grunnkröfur áður en þau eru markaðssett. Almennur stuðningur við 4G, 5G eða VoLTE er ekki staðfesting á því að farsími nái í 112 á Íslandi.
Í drögum Fjarskiptastofu er meðal annars mælst til þess að innflytjendur og seljendur farsíma prófi hvort símarnir nái í 112 áður en þeir fara á sölu og taki síma úr sölu sem vitað er að geti ekki tryggt tengingu við númerið.