Covid virðist aftur vera að sækja í sig veðrið í Bretlandi og hefur sjúkrahúsinnlögnum vegna veirunnar fjölgað um tæplega 50 prósent á aðeins einni viku. Í London er aukningin enn meiri, eða tæplega 80 prósent.Daily Mail greinir frá þessu og vísar til nýjustu gagna UKHSA, bresku heilbrigðisöryggisstofnunarinnar.Aukningin er sérstaklega áberandi meðal fólks 85 ára og eldra í London. Þar hefur tíðni sjúkrahúsinnlagna hækkað úr 7,08 í 12,43 á hverja 100 þúsund íbúa.Mun færri taka nú Covid-próf en áður og því er erfitt að segja til um raunverulegt umfang smita.
Covid-innlögnum fjölgar hratt – Þetta eru einkennin sem læknar sjá núna