Fyrrverandi eiginmaður, tengdafaðir og mágur áhrifavaldsins og fyrirsætunnar Abby Choi sitja á sakabekk í Hong Kong sakaðir um að hafa myrt hana. Réttarhöldin hófust á miðvikudag og er talið að þeim ljúki ekki fyrr en í desember.
Morðið á Abby Choi vakti mikla athygli og óhug þegar sundurlimað lík hennar fannst í febrúar 2023. Líkamsleifar hennar fundust á nokkrum stöðum. Alex Kwong, fyrrverandi eiginmaður hennar, Kwong Kau, faðir hans, og Anthony Kwong, bróðir hans, voru handteknir vegna morðsins.
Feðgarnir neita sök en saksóknarar gefa lítið fyrir þær yfirlýsingar. Þeir hafa meðal annars lagt fram myndskeið sem þeir segja að sýni fram á sekt feðganna. Þar sjást þeir kaupa búnað sem saksóknarar segja að hafi verið notaður til að búta lík Abby Choi í sundur. Þar á meðal var kvörn. Eins sést hún fara inn í annan sendibílanna sem feðgarnir notuðu, sem var síðasta skipti sem hún sást. Loks sést eiginmaðurinn fyrrverandi leggja öðrum bílnum nærri einum staðnum þar sem líkamsleifar hennar fundust.
Eiginmaðurinn fyrrverandi var handtekinn þegar hann reyndi að fara frá Hong Kong daginn eftir að bróðir hans og faðir voru handteknir.
Saksóknarar segja að feðgarnir hafi skipulagt morðið á konunni og verið ákveðnir í að sundurlima lík hennar. Þeir sögðu að hjónin fyrrverandi hefðu deilt um lúxushús sem hún hefði borgað fyrir. Þau áttu tvö börn saman.