Bandaríski leikarinn John Goodman, sem er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Roseanne, The Big Lebowski og The Righteous Gemstones, hefur misst rúmlega 90 kíló án þess að nota einhver þyngdartapslyf á borð við Ozempic eða Wegovy. Í staðinn byrjaði hann að borða minni skammtastærðir, hreyfa sig daglega og gaf áfengi upp á bátinn.Miðillinn Newser fer yfir hvernig hann fór að því, en þyngdartapið var ekki skjótt heldur tók þetta tíma og þolinmæði.
Svona fór John Goodman að því að missa 90 kíló án þess að nota Ozempic