Aðalheiður Jensen beinir sjónum að næringu sem við hugsum síður um í nýjum pistli, því sem við tökum inn í hugann og samskiptunum sem við eigum við aðra. Hún bendir á að þótt fólk borði hollan mat, hreyfi sig og sofi vel geti daglegt álag, samanburður og samskipti sem draga úr því líka haft áhrif á líðan.
Hugsanir okkar, efnið sem við horfum á, fólkið sem við umgöngumst og hvernig við tölum við okkur sjálf séu því einnig þættir sem þurfi að huga að.
Þegar við segjum já en meinum nei
Aðalheiður spyr hvort við séum stundum að ganga gegn eigin þörfum til að forðast óþægindi eða viðbrögð annarra.
„Hversu oft segjum við t.d. já þegar við meinum nei og erum þannig að fara gegn okkur sjálfum?“
Hún veltir jafnframt upp hversu lengi fólk dvelji í aðstæðum sem draga úr því vegna þess að það vilji ekki valda vonbrigðum eða skapa óþægindi.
Að hennar mati er gagnlegt að skoða hvort við leyfum öðrum að fara yfir mörkin okkar, hversu miklum tíma við verjum í neikvæðni og í hvaða aðstæðum okkur líður best.
Taka andrými áður en líkaminn segir stopp
Aðalheiður hvetur fólk til að leyfa sér að taka hlé þegar þess er þörf.
„Það má setja mörk, það má segja nei, það má yfirgefa aðstæður og það má taka sér andrými.“
Hún segir daglega lífið ekki eiga að vera svo þungt að við þurfum reglulega frí til að ná okkur. Þess vegna sé ástæða til að spyrja ekki aðeins hvernig við nærum líkamann, heldur líka hvernig við nærum hugann og hvert við beinum orkunni.
Starfar við heilsu og lífsgæði
Aðalheiður rekur Tilveruna Barre og yoga stúdíó þar sem hún hefur um árabil unnið með fólki að andlegri og líkamlegri vellíðan. Þar býður hún meðal annars upp á námskeið, fyrirlestra og ráðgjöf. Stúdíóið er á Garðatorgi 3 í Garðabæ.