Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
Fjármálaráðuneytið metur tekjutap ef gjaldahækkanir verða takmarkaðar við verðbólgumarkmið Seðlabankans vera 1,6 milljarða króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina reiðubúna að takmarka hækkanir við 2,5 prósent ef aðrir leggi sitt af mörkum og kjarasamningar haldi.
Afkoma ríkissjóðs myndi versna um 1,6 milljarða króna ef dregið yrði úr fyrirhuguðum gjaldahækkunum ríkisins. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn Heimildarinnar um áhrif þess að takmarka hækkanirnar við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Fjárlagafrumvarp næsta árs gerir ráð fyrir 4,7 milljarða króna afgangi. Minni gjaldahækkanir myndu því, að öðru óbreyttu, lækka afganginn í 3,1 milljarð króna. Rúmur þriðjungur áætlaðs afgangs myndi þannig hverfa.
„Ef til lækkunar kæmi má gera ráð fyrir að gjöldin lækki um 1,6 milljarð og afkoma ríkissjóðs myndi þá versna sem því næmi,“ segir í svari ráðuneytisins.
Háð því að samningar haldi
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpu í gær að ríkisstjórnin væri reiðubúin að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5 prósent. Jafnframt yrði tilmælum beint til fyrirtækja í eigu ríkisins.
Hún tengdi það þó …