Ríkisstjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um að draga úr hækkun kílómetragjalds þrátt fyrir áform sín um að hækka krónutölugjöld og gjaldskrár um 2,5 prósent í stað meiri hækkana sem boðaðar voru í fjárlagafrumvarpi næsta árs.
Þetta sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í viðtali við Erlu Maríu Davíðsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Daði Már sagði að ef draga ætti úr hækkun kílómetragjalds þyrfti að mæta því með öðrum hætti við fjárlagagerðina. Hann sagði að ekki yrði vikið frá markmiði um hallalaus fjárlög.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að ríkisstjórnin legði fram margar góðar tillögur til að greiða fyrir kjarasamningum og sagði að í þeim væri margt sem fólkið í landinu gæti verið sátt við.
Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í dag innlegg sitt í viðræður verkalýðshreyfinga og atvinnurekenda um að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga.
„Meðal annars hefur verið rætt um að gjaldahækkanir myndu fylgja verðbólgumarkmiði Seðlabankans, það hefur verið rætt um ákveðnar aðgerðir á húsnæðismarkaði, það hefur verið rætt um ákveðnar aðgerðir sem snúa að réttindum launafólks og nokkrum öðrum hlutum,“ sagði Daði Már.
Teljið þið að þetta sé nóg til að afstýra uppsögn kjarasamninga?
„Það er auðvitað í sjálfu sér ekki hlutverk ríkisstjórnarinnar. Þetta eru samningar á milli aðila vinnumarkaðarins. Við höfum lýst því yfir að við séum tilbúin að liðka fyrir því með öllum þeim ráðum sem við höfum þó að teknu tilliti til þess að það er einurð afstaða ríkisstjórnarinnar að forsendan um hallalaus fjárlög verði að halda og við munum halda okkur við hana.“
Daði Már segir að ríkisstjórnin hafi átt mjög uppbyggilegt samtal við aðila vinnumarkaðarins þó að kröfurnar hafi verið aðrar og meiri, þannig sé það alltaf í samningum. Hann segir mestu máli skipta að ríkisstjórnin haldi sig við það að skila hallalausum fjárlögum.
„Það er mikilvægasta ráðstöfunin til lengri tíma og hún takmarkar að einhverju leyti svigrúmið til að koma með fjárútlát.“
Daði Már ítrekar að aðilar vinnumarkaðarins verði að axla ábyrgð á eigin samskiptum. Hann segir ríkisstjórnina hafa gengið mjög langt til að ná markmiði kjarasamninga um að lækka vexti og ná verðbólgu niður.
Ríkisstjórnin hefur ekki ákveðið að takmarka hækkun kílómetragjalds við 2,5 prósenta verðbólgumarkmiðið. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu hækkar það um 15,9 prósent.
„Við höfum rætt þetta en aftur höfum við rætt þetta á grundvelli þeirrar forsendu að við viðhöldum hallaleysi fjárlaga. Við þurfum þá að vera sammála um það hvernig við fjármögnum slíkar aðgerðir.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk umboð ríkisstjórnarinnar til að leggja fram ákveðin atriði sem ríkisstjórnin er reiðubúin að leggja af mörkum til að kjarasamningar haldi.
„Við höfum talað meðal annars, eins og við höfum sýnt spilin á, varðandi krónutölubreytingar og höfum sagt að við erum tilbúin til að endurskoða þær í verðbólgumarkmið ef samningar halda.“
Kristrún segir einnig rætt um húsnæðismál og félagsleg réttlætismál á vinnumarkaði.
Hún segir að aðrar mögulegar aðgerðir verði kynntar síðar.
Við ætlum ekki að kynna þetta fyrirfram. Næstu dagar munu nokkuð ráða úrslitum um hvað aðilar vinnumarkaðarins gera. Það er auðvitað líka virkt samtal á milli þeirra, ýmislegt sem getur líka átt sér stað í tvíhliða samtali milli SA og ASÍ.
Kristrún segist ekki geta fullyrt hvort að þetta dugi til að samningar haldi en segir að þarna séu mjög góðar tillögur. „Ég held að það sé heilmikið þarna sem aðilar á vinnumarkaði og sérstaklega fólkið í landinu geti verið sátt við.“
„Ég ætla bara að leyfa mér að vera bjartsýn,“ segir Kristrún um að samningar haldi. Hún segir að nú glími landsmenn við verðbólguskot sem tengist fyrst og fremst stöðunni í Miðausturlöndum og alþjóðastjórnmálum.
Fréttin var uppfærð með viðtali við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.