181 var sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir margt benda til að þungur vetur sé fram undan á íslenskum vinnumarkaði.
Tilkynnt var um sex hópuppsagnir til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði, þar sem samtals 181 missti vinnuna. Flestar uppsagnirnar voru á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni, eða 81.
64 störfuðu hjá NetApp, flestir sem forritarar. Móðurfélag NetApps er bandarískt en starfsemi fyrirtækisins á Íslandi var lögð niður á dögunum og öllu starfsfólki sagt upp. Þá var sautján íslenskum starfsmönnum alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækisins LS Retail sagt upp.
68 uppsagnir voru í byggingariðnaði, 20 í fiskvinnslu og þrettán í íþróttastarfsemi. Öllum þjálfurum Fimleikafélagsins Bjarkar á fullorðinsaldri var sagt upp vegna endurskipulagningar og 20 var sagt upp í fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir þessar hópuppsagnir dæmigerðar fyrir árstíðabundnar sveiflur á vinnumarkaði. Annað sé uppi á teningnum varðandi hugbúnaðargeirann. „Ef við tökum það út fyrir sviga, þann hóp þá er þetta um 100 manns og það er það er ekki óeðlilegt í september,“ segir Unnur. „Við erum að byrja í svona árstíðabundinni niðursveiflu á vinnumarkaði núna.“
En er þetta merki um þungan vetur framundan? „Já, ég gæti nú trúað því að það sé þungur vetur framundan á vinnumarkaði,“ segir Unnur. Spáð er meira atvinnuleysi. „Í okkar síðustu spá erum við að gera ráð fyrir 5,5% atvinnuleysi í febrúar þegar við spáum því hæst.“