Michael Goessling hafði alla tíð vitað að hann væri ættleiddur og vissi lítið um líffræðilegan uppruna sinn. Það breyttist heldur betur þegar DNA-próf leiddi hann á slóðir blóðforeldra sinna og komst að því að faðir hans er heimsfræg rokkstjarna.Goessling, sem ólst upp í St. Louis í Missouri, var gefinn til ættleiðingar skömmu eftir fæðingu. Líffræðilegir foreldrar hans voru aðeins 14 ára þegar móðir hans varð ófrísk.Goessling segir að hann hafi átt góða æsku hjá kjörforeldrum sínum, Paul og Kay Goessling, en forvitnin um uppruna hans hafi þó alltaf verið til staðar.
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans