Stjórnarandstöðuþingmenn og hjálparkokkar þeirra halda uppi stöðugum úrtölum og hræðsluáróðri um ástandið á Íslandi og gefa til kynna að illa gangi í atvinnulífinu, efnahagsmálin reki á reiðanum og hér sé allt á leiðinni til fjandans í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Með ólíkindum er að heyra tóninn frá Samtökum atvinnulífsins þar sem fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins er gegninn aftur pólitískt og tekinn til við að stjórna sínum gamla flokki af hliðarlínunni með sífelldum árásum á núverandi ríkisstjórn.
Orðið á götunni: Atvinnulífið blómstrar á Íslandi þrátt fyrir úrtölur og neikvætt raus stjórnarandstöðunnar