Í æfingaviðmiðum Fimleikasambands Íslands er mælt með því að 12 ára börn æfi áhaldafimleika í allt að 3,5 tíma í senn 5-6 sinnum í viku.
Börn allt niður í 6 ára geta mætt á kostnaðarsamar aukaæfingar í fótbolta og handbolta til þess að bæta tækni og færni í íþróttunum.
Aðjúnkt við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík segir að íþróttaiðkun barna yngri en 12 ára eigi að snúast um annað en keppni og afreksmennsku.
Eva Hrund Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambandsins, segir langa æfingatíma skýrast meðal annars af fjölda áhalda sem æfa þurfi á.
Erlendis sé æfingaálag barna oft mun meira.
Endalaust meira er ekki betra
Dr. Sveinn Þorgeirsson, aðjunkt við íþróttafræðideild HR, segir áhersluna á árangur og keppni í íþróttaiðkun barna yngri en 12 ára vera stórt spurningamerki.
Hann segir íþróttir barna vera orðnar umvafðar keppni og foreldrar séu komnir oft í erfiða stöðu í samkeppninni.
„En það er enginn að spyrja, er meira virkilega betra?“
Sveinn segir mótahald barna yngri en 12 ára vera komið fram úr hófi. Að hans mati á að skipuleggja og nálgast íþróttaiðkun barna á annan hátt en með því að vera að búa til forskot á keppinauta.
„Keppnin má ekki taka alveg yfir fókusinn.“
Meintur metnaður foreldra fyrir árangri barna sinna í íþróttum getur komið niður á frammistöðu barna, segir Sveinn.
Getur verið að börn fari að upplifa sig að þau þurfi stöðugt að bæta sig eða bæta við aukaæfingum til að halda í við hina?
„Já. Og það er eitt sem er mjög erfitt og oft kemur núningur í tengslum við það. Íþróttir eru umvafðar keppni. Það ýtir alltaf við okkur að við erum að búa okkur til forskot í keppninni.“
Sveinn segir það vera misskilning að bætingar í íþróttagreinum séu línulegt ferli. Börn taki skref aftur á bak, þau þroskast á misjöfnum tíma og meiðsli, breyttur þjálfari eða breytt hlutverk hafi áhrif.
Að mati Sveins á íþróttaiðkun barna undir 12 ára að snúast meira um félagslegan og líkamlegan þroska heldur en keppni.
Börn missa ekki af neinu þó þau missi af móti
Sveinn segir að æfingar innan skipulegs íþróttastarfs hafi ekki breyst mikið undanfarin ár. Það sem hafi hinsvegar breyst sé framboðið á alls kyns einkaþjálfun fyrir börn og svo mótahald.
Hann segir það mikilvægt tekjulega séð fyrir íþróttafélög að halda mót en það sé fjarri lagi að börn þurfi að taka þátt í öllum mótunum til að halda í við einhverja þróun.
Sveinn beinir því til foreldra að slaka aðeins á, sérstaklega fram að kynþroska barna. Eftir 12 ára aldurinn sé í góðu lagi að leggja meiri áherslu á að byggja upp forskot með aukaæfingum og setja keppni í meira mikilvægi.
Fram að því eigi íþróttaiðkun að snúast um að búa til fjölbreyttan grunn, halda jákvæðni og áhuga á íþróttinni.
Margt jákvætt við þróunina í fimleikunum
Fimleikafélagið Björk í Hafnarfirði sagði öllum þjálfurum sínum upp störfum á mánudag vegna neikæðrar fjárhagsstöðu félagsins.
Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri Bjarkar, hefur sagt það afar kostnaðarsamt að halda úti afreksstarfi í áhaldafimleikum. Æfingahópar séu fámennir, æfingar langar og það þurfi 2-3 þjálfara fyrir hvern hóp.
Fimleikasamband Íslands gefur út æfingaviðmið bæði fyrir áhaldafimleika og hópfimleika.
Eva Hrund Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambandsins, segir fimleikafélaögum frjálst að aðlaga æfingaviðmið sambandsins að eigin starfi. Sambandið skipti sér ekki af því hvort æfingarnar séu fleiri eða færri.
Hinsvegar sé það þannig að ef börn hafi áhuga á að ná langt í fimleikum þá fylgi því miklar og stífar æfingar.
„Þú getur alveg æft fimleika og æft lítið. En ef þú vilt verða mjög góður í áhaldafimleikum þá þarftu bara aðeins að æfa meira.“
Eva Hrund segir félög mörg hafa aðlagað æfingaálag að börnum sem vilja æfa fimleika án þess að vera með þetta mikla álag.
Sveinn segir margt hafa breyst til hins betra í fimleikum undanfarin ár og ýmis skref tekin til að gera krökkum kleift að æfa fimleika án þess að stefna á titla.
Hann segir þó ljóst að æfingaálag í fimleikum sé mikið í samanburði við aðrar íþróttir barna og hann vill sjá aukna áherslu á að börn hafi tíma til að leika sér og jafnvel stunda fleiri en eina íþrótt.
„Hver er tíminn fyrir allt hitt sem þú þarft til að vaxa og dafna sem einstaklingur?“