Maður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og vopnalagabrot vegna atvika í húsi í Gránufélagsgötu á Akureyri seint í ágústmánuði árið 2024. Maðurinn er sakaður um að hafa veist með ofbeldi að öðrum manni og slegið hann í nokkur skipti í höfuðið með útdraganlegri kylfu með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut tvo 4-5 cm skurði á höfði, annan í hársverði, sem sauma þurfti með fjórum sporum, og hinn vinstra megin við hvirfil.
Ákærður fyrir árás á Akureyri: Lögðu hald á kylfu með álímdum sprautunálum