Alls missti 181 vinnuna í þeim sex hópuppsögnum sem voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði.
Uppsagnirnar eru flestar í tveimur atvinnugreinum. Alls var 80 sagt upp á sviði hugbúnaðar og upplýsingatækni og 68 í byggingariðnaði. 20 var sagt upp í fiskvinnslu og þrettán í íþróttastarfsemi.
Af þeim 181 sem var sagt upp í hópupsögnum störfuðu 64 hjá NetAppi á Íslandi. Það eru allir starfsmenn fyrirtækisins hér á landi og var starfsemin lögð niður. Öllum þjálfurum Fimleikafélagsins Bjarkar á fullorðinsaldri var sagt upp vegna endurskipulagningar og 20 var sagt upp í fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ. Þá greindi Vísir frá því á dögunum að rúmlega 20 manns hefði verið sagt upp hjá ÍAV.