Eitt atriðið í fyrsta þættinum vakti sérstaka athygli og var það þegar tveir lögregluþjónar fóru í útkall vegna heimilisofbeldis.
Þegar á hólminn var komið var um kynlífsstunur að ræða og ekki aðeins á milli tveggja einstaklinga. Alls komu fjórir aðilar við sögu og var einn af þeim Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, eins og sjá má hér að neðan.
Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í fjölbreyttum og ófyrirsjáanlegum útköllum í þáttunum. Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir.
Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.