RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Ríkisfjölmiðillinn rekur sjálfstæða utanríkisstefnu án þess að hafa til þess nokkurt umboð. Meirihluti stjórnar RÚV hyggst sniðganga Eurovision-söngvakeppnina árið 2027, líkt og hún gerði á síðasta ári. Ástæðan er þátttaka Ísraels í söngvakeppninni. Minnihluti stjórnar RÚV mótmælir, líkt og segir í meðfylgjandi frétt.
Einn þriggja stjórnarmanna RÚV er andmælir pólitískri misnotkun ríkismiðilsins er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ingvar Smári Birgisson. Í samtali við Vísi segir Ingvar Smári ekki hlutverk RÚV að reka utanríkisstefnu. Við orð stjórnarmannsins má bæta að það er ekki hlutverk ríkismiðilsins að hafa í frammi tiltekna pólitík almennt. En því miður er sú einmitt raunin. RÚV stundar pólitískan aktívisma kinnroðalaust.
Stefán Jón Hafstein er formaður stjórnar RÚV fyrir hönd Samfylkingar. Hann var borgarfulltrúi flokksins laust eftir aldamót og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingar þegar flokkurinn tók Evrópusambandsaðild á stefnuskrá sína. Stefán Jón er dæmigerður pólitískur aktívisti, er t.d. formaður Aldins, samtaka eldri borgara gegn loftslagsvá. Auk þess, vitanlega, að finna Ísrael allt til foráttu og beita stöðu sinni til sniðgöngu á ríki Gyðinga.

Stefán Jón Hafstein.
Eins og nærri má geta var Stefán Jón áfram um að þjóðin segði já við ESB-umsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni fyrir mánuði. Tíu dögum fyrir kjördag var haldinn stjórnarfundur RÚV. Þar harmaði Stefán Jón að pólitískir dagskrárliðir RÚV, eins og Kastljós og Silfrið, væru í sumarfrí á sama tíma og umræðan væri í mótun. Formaður stjórnar RÚV boðaði frekari gagnrýni á frammistöðu ríkismiðilsins að loknu þjóðaratkvæði. Í fundargerð segir:
Stjórnarformaður ítrekaði fyrri athugasemdir og gagnrýni á að þættir á borð við Kastljós, Silfrið og fleiri i sjónvarpi og útvarpi hefðu farið i sumarfrí og umfjöllun á þeim vettvangi því fallið niður meðan kosningabaráttan tók á sig mynd i samfélaginu. Kvaðst hann ekki vilja ræða þau mál frekar meðan kosningabaráttan stæði, en boðaði frekari umfjöllun um frammistöðu Ríkisútvarpsins að henni lokinni. (feitletr. pv)
Pólitíski aktívistinn Stefán Jón er fyllilega meðvitaður um mikilvægi þess að móta umræðuna í aðdraganda þjóðaratkvæðisins. Með því að handvelja viðmælendur og gesti í umræðuþætti er RÚV í feikilega sterkri stöðu að hafa áhrif á kjósendur. Formaður stjórnar RÚV harmar að lykilþættir ríkismiðilsins voru ekki virkjaðir í þágu já-hreyfingarinnar og ESB-sinna.
Líkt og aktívista er háttur er Stefán Jón tvöfaldur í roðinu. Út á við þykist hann málefnalegur og tekur sér jafnvel í munn orð eins og ,,stafrænt fullveldi" í varnarræðu fyrir RÚV. Í vor skrifaði hann Vísisgrein. Hér er ein efnisgrein:
Sem lang stærsti fjölmiðill landsins, sem borin er uppi af almannafé, ber Ríkisútvarpið sérstaka ábyrgð við þessar knýjandi aðstæður. Að tryggja lýðræðislegar stoðir samfélagsins er hin raunverulega réttlæting fyrir því að reka almannaútvarp.
Opinberlega segist Stefán Jón vilja tryggja ,,lýðræðislegar stoðir" en hans helsta áhugamál er að móta umræðuna í þágu málefna sem hann ber fyrir brjósti, t.d. sniðgöngu Ísraels og ESB-aðild Íslands. RÚV leikur tveim skjöldum, þykist málefnalegur og hlutlægur fjölmiðill en en er í raun harðdrægur og undirförull aktívistamiðill.
