Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir að stjórnvöld verði að halda aftur af hækkunum kílómetragjalds til að styðja við kjarasamninga.
Forsætisráðherra tilkynnti í gær að gjaldskrár og krónutölugjöld myndu ekki hækka um meira en 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans. Í fjárlögum var gert ráð fyrir 5,2 prósenta hækkun.
Fjármálaráðherra sagði í dag að ekki hefði verið tekin ákvörðun um að hætta við að hækka kílómetragjald um 15,9 prósent um áramót. Hann sagði að það yrði að vera hluti af samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins og finna þyrfti aðrar leiðir til að vega upp á móti fjárhagslegum áhrifum þess að hækka gjaldið minna en til hefur staðið.
Formaður Starfsgreinasambandsins brást við yfirlýsingum ráðherranna í hádegisfréttum.
Hann sagði sumt mjög jákvætt sem kemur fram í tillögum ríkisstjórnarinnar um að liðka fyrir kjarasamningum.
Hann sagði að þegar hefði um helmingur sveitarfélaga tilkynnt að þau ætluðu að takmarka gjaldahækkanir um áramót við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans.
„Þau ætla að vera með. Þau ætla að stilla allar sínar gjaldskrár í tveimur og hálfu prósenti. Þess vegna er mjög mikilvægt að stjórnvöld gangi á undan með góðu fordæmi og sýni með afgerandi hætti að þau ætli að taka þátt í þessu verkefni með okkur að ná niður verðbólgu og vöxtum.“
Vilhjálmur taldi þó ekki nóg að halda aftur af hækkun krónutölugjalda og verðskráa ef kílómetragjaldið hækkaði miklu meira.
„Mitt mat er að það verður ekki gert ef það verður einn þáttur í gjaldskrárhækkunum ríkisins sem kveður á um allt að 16 prósenta hækkun. Það er alls ekki það sem við þurfum. Við þurfum að vera með eina tölu sem kveður á um 2,5 prósenta hækkun yfir línuna og það má enginn skjóta sér undan ábyrgð þar.“
Vilhjálmur sagðist ekki gera lítið úr markmiði ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög. „Við þurfum bara að finna flöt á því hvernig við uppfyllum það.“