Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræðingurinn Beta Reynis (Elísabet Reynisdóttir), minnist föður síns á þessum tímamótum, með grein á Facebook-síðu sinni, þar sem hún veltir upp eðli sorgarinnar og áhrifum hennar á líkama og atferli. Sorgarferlið eftir lát föður hennar hefur fært Betu nýjan lærdóm sem hún er að takast á við og átta sig á. Hún segir merkilegt hvernig sorgin breytist með tímanum. Sorgin fer ekki og þarf heldur ekki að fara:
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“