Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að setja 100 milljónir tunna af olíu á markað til að stuðla að lækkun heimsmarkaðsverð á olíu.
Greint var frá þessu í yfirlýsingu frá frönsku forsetaskrifstofunni. Tuttugu milljónir tunna fara á markað strax og afgangurinn á næstu fjórum mánuðum.
Ákvörðunin kemur eftir miklar hækkanir á olíu, og sérstaklega dísil, sem tengja má við óvissu um olíuflutninga vegna stríðsátaka í Íran.
Áfram refsiaðgerðir gegn Rússlandi
Engar takmarkanir verða á útflutningi á orku eða orkuframleiðslu milli G7-ríkjanna og einnig var ákveðið að halda refsiaðgerðum gegn Rússlandi áfram.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hafði þrýst á aðra leiðtoga G7-ríkjanna að grípa til þessara aðgerða.
Bandaríkin eru eitt G7-ríkjanna og samkvæmt þessu ætla þau ekki að setja á útflutningsbann á dísil, eins og Trump hafði hótað.
G7 stendur fyrir samstarf sjö helstu iðnríkja heims. Auk Bandaríkjanna eru það Kanada, Bretland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía og Japan.
Fulltrúar Evrópusambandsins sitja einnig fundi ríkjanna þar sem umfjöllunarefnin eru efnahags- og orkumál, alþjóðaviðskipti og öryggismál.