Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.
„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum fram á að árið endi í 39–40 milljörðum,“ segir Klara Símonardóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Mest kaupa Íslendingar af fatnaði en síðustu misseri hafa kaup á byggingarvörum, vefnaðarvöru og heimilisbúnaði færst í aukana.
Kínverska netverslunin Temu var stofnuð haustið 2022 en náði flugi í Evrópu snemma árs 2024. Aðrir smásölurisar frá Kína, svo sem Ali Express og Shein, hafa einnig notið mikilla vinsælda.
Línulegur vöxtur frá 2022
Aukning í netverslun var mest milli áranna 2022 og 2023.
„Svo er þetta bara búið að vera línulegur vöxtur á hverju einasta ári og sér ekki fyrir endann á því. Við erum ekki búin að ná toppnum ennþá.“
Hvaðan eru þessi kaup að koma aðallega?
„Við getum ekki rakið þetta niður á einstaka verslanir eða einstaka aðila. Fólk talar mikið um Temu, Shein eða Ali en við sjáum ekki hvaðan sendingarnar koma.“
Klara segir þó að hægt sé að sjá frá hvaða landi þær eru. Flestar eru þær frá Kína, eða um þriðjungur.
Það hlutfall er sambærilegt því sem tíðkast í öðrum löndum.