Það er víða eldfimt í Frakklandi, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu. Eldar hafa logað nokkuð víða um landið í dag í mótmælum sem framhaldsskólanemar efndu fyrst til í París í síðustu viku til að mótmæla slæmum aðbúnaði í skólum. Síðan þá hafa um tvö þúsund manns verið handteknir í mótmælum sem hafa dreifst um landið.
Mótmælin byrjuðu með því að nemendur á síðasta ári í framhaldsskóla lokuðu inngöngum að skólum til að mótmæla, sem varð til þess að lögreglan var kölluð til. Þar var notast við ýmislegt smálegt eins og hjól og vörubretti.
Mótmælin beindust gegn ýmsu í aðbúnaði skólanna. Meðal þess eru langir skóladagar, sem geta staðið frá klukkan átta á morgnana til klukkan sex síðdegis, þannig að lítill tími sé fyrir tómstundir. Of heitt sé í kennslustofum og of margir í bekkjum. Þá skorti kennara þjálfun til að meðal annars huga að andlegri heilsu nemenda og almennur kennaraskortur sé víða. Nemendurnir eru einnig ósáttir við sameiginlega vefsíðu með umsóknum um háskólanám sem gildir fyrir allt landið. Vefsíða eigi ekki að ákveða framtíð þeirra.
Eftir því sem liðið hefur á vikuna hefur aukin harka færst í mótmælin.
Í gær og í dag hafa eldar verið kveiktir á götum úti, meðal annars í ruslatunnum. Mótmælendur hafa skotið upp flugeldum á götum úti. Í nokkrum tilvikum hefur lögreglan beitt táragasi. Röskun hefur verið á skólastarfi í yfir 560 skólum í dag vegna lokana stúdenta og mótmælin hafa einnig leitt af sér samgöngutruflanir. Rúmlega tvö þúsund manns hafa verið handteknir á þessum tveimur dögum, langflestir undir lögaldri.
Minnst 65 hafa slasast í mótmælunum. Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands sagði í dag að 17 ára piltur væri til rannsóknar grunaður um tilraun til manndráps eftir að hafa barið óeinkennisklæddan lögreglumann svo illa að hann missti meðvitund. Lögreglumaðurinn er á batavegi. Einn nemandi hefur auk þess særst alvarlega. Mótmælendur hafa sakað lögreglu um að beita of miklu valdi gegn sér.
Verkalýðsfélög styðja stúdenta
Édouard Geffray menntamálaráðherra Frakklands viðurkennir að ýmislegt sé til í gagnrýnisröddum nemanna og hefur boðað að samráðsvettvangi við þá verði komið á fót á mánudaginn. Geffray er þó ósáttur við hversu langt mótmælin hafa gengið og segir hreyfingu framhaldsskólanema vera í gíslingu lítilla ofbeldisfullra hópa.
Ekkert lát virðist ætla að vera á mótmælunum. Fjölmörg verkalýðsfélög hafa hvatt félagsmenn sína til að taka þátt í þeim og hafa meðal annars boðað til eins dags verkfalls 6. október til stuðnings kröfum nemendanna.
Nokkrir hafa rifjað upp í þessu samhengi stúdentamótmæli í Frakklandi vorið 1968 sem þróuðust í allsherjarverkfall og urðu til þess að ríkisstjórnin féll og boðað var til kosninga. Hálft ár er í næstu forsetakosningar í Frakklandi.