Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í veikindaleyfi.
Þetta kemur fram í fundargerð forsætisnefndar Reykjavíkurborgar frá því í dag auk meðfylgjandi tilkynningar frá skrifstofustjóra borgarstjórnar þar um. Þar kemur fram að Heiða Björg verði fjarverandi frá 30. september til 30. nóvember 2026 samkvæmt læknisvottorði.
Í tilkynningunni segir að í samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg komi fram að sé borgarfulltrúi forfallaður frá störfum vegna slyss eða veikinda haldi hann launum eigi að síður í allt að eitt ár.
Samkvæmt fundargerðum mætti Heiða Björg síðast á fund borgarráðs 3. september. Auk borgarstjórnarfunda situr hún fundi borgarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs sem fulltrúi.
Fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar er Bjarnveig Birta Bjarnadóttir.