Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu og gististöðum. Nú hafa þeir endurtekið leikinn og er afraksturinn sería tvö sem verður frumsýnd í nóvember á Sýn+ og verður sýnd á föstudagskvöldum.
„Ég og Dóri DNA ferðuðumst til sex nýrra borga og vorum í rauninni bara að skoða slappa og furðulega hluti,“ segir Steindi um nýju þáttaröðina.
„Það er rosalega gaman að fara með Dóra í þessar ferðir því hann er mikill lúxusmaður. Hann elskar að fá sér gott að borða, drekka gott náttúruvín, reykja stóra vindla og njóta. Það er alveg einstaklega gaman að fara með honum í þetta því við gerum ekkert af þessum hlutum í þáttunum,“ segir hann.
Raunar segir Steindi að þegar hann tjáði Dóra að það væri áhugi á því að gera nýja seríu hafi Dóri sagt orðrétt: „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“. Viðbrögðin hafi verið svo góð að þeir endurléku símtalið fyrir þættina.
Meðal þess sem þeir félagar gerðu í nýju þáttaröðinni var að gista hjá sirkúsfólki í Brussel, fara í hafmeyjunámskeið í Orlandó, sofa í mygluðum húsbíl og fara í rottutúr í New York.