Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í málaflokkinn. Með þeim sé regluverkið hér á landi að færast nær því sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum.
„Það helst í hendur við markmið ríkisstjórnarinnar að ná stjórn á þessum málaflokki, að ná stjórn á útlendingamálum,“ segir hún. Byrjað hafi verið á alþjóðlegri vernd, með þessu frumvarpi sé verið að endurskoða dvalarleyfi og í framhaldi af því verði ríkisborgararéttur endurskoðaður.
Athygli hefur vakið að til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair.
„Auðvitað getur fólk enn þá sótt um leyfi til þess að vera með au-pair inni á sínum heimilum, hins vegar hefur það verið ákall, meðal annars innan úr verkalýðshreyfingunni, að dæmin um vonda meðferð stúlkna, til dæmis frá Filippseyjum, séu of mörg,“ segir Þorbjörg.
Norðmenn hafi þegar breytt sínum reglum varðandi þetta og því séu sömu breytingar lagðar til.
Sex ár en ekki fjögur fyrir varanlegt dvalarleyfi
Þorbjörg segir að skortur hafi verið á yfirsýn í málaflokknum. „Við erum að gera auknar kröfur til fólks sem kemur hingað til lands,“ segir Þorbjörg.
Nái lögin fram að ganga þarf fólk að hafa dvalið sex ár samfellt á Íslandi í stað fjögurra til þess að fá varanlegt dvalarleyfi. Umsækjandi má ekki vera í vanskilum með skatta, opinber gjöld eða sektir. Þá þarf umsækjandi að geta sýnt fram á trygga framfærslu.
Undantekning verður gerð fyrir sérfræðinga með þekkingu sem sé nauðsynleg fyrir atvinnulífið. Áfram verður miðað við fjögur ár í þeim tilvikum.
„En í þessu frumvarpi erum við líka að gera auknar kröfur til íslensks samfélags um það hverjar móttökurnar eru,“ segir Þorbjörg.
Ekki sjálfsagt að öll ættin mæti
Einnig stendur til að gera breytingar á fjölskyldusameiningu. Lágmarksaldur sambúðarfólks verður 24 ár fyrir bæði, líkt og tíðkast í Noregi og Danmörku, í stað 18 nú.
Skilyrðinu er ætlað að vernda gegn þvinguðum hjónaböndum og málamyndahjúskap.
Þorbjörg segir að í eðli sínu sé dvalarleyfi oft tímabundin dvöl vegna atvinnu.
„Það á alls ekki að vera sjálfgefið að það felist í því að allur þinn ættbogi fylgi þér,“ segir Þorbjörg sem telur að núverandi fyrirkomulag sé á skjön við það sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum þar sem fjölskyldusameining er mun takmarkaðri.
„Í mínum huga er þetta skynsamt regluverk í þeim tilvikum þar sem fólk ætlar sér og er að setjast hér að og hefur verið hér í nokkurn tíma. Þá getur fólk sótt um þetta en við viljum hafa stjórn á þessu og við viljum að þetta haldist í hendur við einhverja skynsama stefnu,“ segir Þorbjörg.