Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt

Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt

Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsund manns og um helmingur svaraði.

Ýmislegt forvitnilegt kom fram í búsetukönnuninni, meðal annars að fólk vill að meðaltali hafa tvö bílastæði við heimili sitt, óskahúsið er að meðaltali tvær hæðir og þau sem svöruðu töldu að meðaltali að eftir fimm ár myndu þau búa í 124 fermetra íbúð.

Þau sem sáu fyrir sér að búa í fjölbýlishúsi vildu langflest búa í litlu eða meðalstóru fjölbýli. Aðeins 8% sáu fyrir sér að búa í stóru fjölbýli, það er að segja í húsum með 17 íbúðum eða fleiri.

Staðreyndin er þó sú að langmest er byggt af stóru fjölbýli. Samkvæmt nýlegri talningu HMS er stórt fjölbýli 83% af því sem nú er í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og þrjár af hverjum fjórum íbúðum sem standa tómar eru einmitt í stóru fjölbýli.

Röð margra ákvarðana

Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, segir að könnunin sýni að búsetuvilji fólks sé fjölbreyttur. Ungt fólk sjái til dæmis frekar fyrir sér að búa í fjölbýli en eldra fólk kjósi frekar einbýli. Um leið sýni hún misræmi á milli búsetuvilja og þess sem er byggt. En hvernig stendur á þessu misræmi?

„Það er kannski röð margra ákvarðana,“ segir Jónas Atli. Ákveðin sveifla hafi verið í átt að stórum fjölbýlishúsum, óháð skipulagsstefnu sveitarfélaga, bæði á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Þessi sveifla sé mögulega ein af afleiðingum þess að íbúðaþörfin hefur verið mikil og mikið ákall um að byggja hratt. „Og þessar íbúðategundir hafa kannski orðið ofan á í ákvörðunum um íbúðauppbyggingu,“ segir hann.

Nýta þurfti landrými betur

En er raunhæft að byggja í samræmi við búsetuvilja og byggja minni hús sem taka meira landrými?

Ólafur Árnason, sem stýrir því sviði HMS sem annast skipulag og umhverfismat, minnir á að svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins til 2040 sé sprottið af ákveðinni þörf til að nýta landrými betur. Ef öll sú uppbygging sem hefði átt sér stað innan borgarinnar á síðustu árum hefði verið gerð með talsvert minni þéttleika heldur en nú, þá væri borgin miklu dreifbýlli, með tilheyrandi kostnaði við innviði, samgöngur og annað. Hann kvaðst ekki vera með gögn til að segja til um hvort landið innan núverandi vaxtarmarka hefði dugað til, en það væri alveg ljóst að breyta hefði þurft út af stefnu um þéttleika til að geta haldið áfram að byggja miðað við íbúðaþörf innan höfuðborgarsvæðisins.

Eðlilegt að fara yfir vaxtarmörkin

Líkt og kom fram í Speglinum á miðvikudag er Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, meðal þeirra sveitarstjórnarmanna sem vilja afnema vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins, en þau mæla fyrir um hversu mikið byggðin getur þanist út.

Ólafur segir vaxtarmörkin gegna mikilvægu hlutverki, ekki aðeins með tilliti til íbúðaþróunar, heldur einnig með tilliti til náttúruvár og fleira. Núgildandi áætlun, sem er frá 2015, gildi til ársins 2040 og eðlilegt að fara heildstætt yfir vaxtamörkin. „Ég ætla ekki að taka beint undir það sem hann segir, en segja engu að síður að það sé alveg eðlilegt að farið sé yfir forsendurnar fyrir þau mörk sem hafa verið sett í dag.“

Ákall um að auka þurfi fjölbreytnina

Ólafur segir að meginstefna svæðisskipulagsins sé að beina mestu uppbyggingunni inn á þróunarsvæði, sem meðal annars eru nálægt fyrirhugaðri Borgarlínu.

Einnig eru áherslur þar varðandi fjölbreytileika í íbúðum, fyrir alla félagshópa, aldurshópa og svo framvegis. Undanfarið hafi verið mikið uppbyggingartímabil. „Við höfum þurft að byggja mjög hratt og mjög mikið. Og skiljanlega náum við að leysa massann mjög, með því að byggja inn á þessi áherslusvæði,“ segir hann. Könnunina megi lesa þannig að það sé ákall eftir því að auka fjölbreytnina, hvort sem það er í íbúðastærðum eða -gerðum, eða í búsetuformi að öðru leyti.

Stærð hússins skiptir ekki endilega meginmáli heldur gerð íbúða

Eins og fyrr segir eru þrjár af hverjum fjórum tómum íbúðum í stóru fjölbýli. Hefur verið byggt of mikið af húsum af þessari gerð á undanförnum árum?

„Ég vil svara spurningunni með því að segja: Er það endilega stærð fjölbýlishússins, eða er það ákveðin gerð íbúða?“ spyr hann. Horfa þurfi til stærðar íbúða, gerðar og gæða. Það skipti ekki endilega meginmáli hvort fjölbýlishúsið sé lítið eða stórt, heldur hvernig íbúðirnar eru skipulagðar. Þannig hafi gengið verr að selja stórar íbúðir af tiltekinni gerð, nánar tiltekið 80 til 120 fermetra ílangar íbúðir, þar sem lítillar dagsbirtu nýtur, með stórri stofu en litlum herbergjum.

Hefur HMS einhverju hlutverki að gegna við að tryggja að ekki sé mikið byggt af slíkum íbúðum?

Ólafur bendir á að nýlega hafi verið sett ný ákvæði í byggingareglugerð sem eigi að tryggja ljósvist. HMS hafi það hlutverk að koma með ábendingar um skipulag til sveitarfélaga og fara yfir þær áætlanir sem eru í gildi. HMS hafi bent á samspil þéttleika og hæðar íbúða, umhverfisgæði ytri svæða, aðgengi að þjónustu, samgöngukerfum og öðru slíku.

Hvað um þessa gagnrýni á slæma ljósvist, hefði HMS átt að grípa þarna inn í og sjá til þess að ekki yrði byggt með þessum hætti?

„Það er spurning hvernig við grípum inn. Við erum með ábendingar um áhyggjur á einstaka reitum, hvort sem er varðandi ljósvist, vindstrengi eða umhverfisgæði í kringum slíkar íbúðir,“ segir Ólafur. Að einhverju leyti hafi verið farið eftir þeim ábendingum. Við öll getum séð fyrir okkur reiti sem eru of þéttir. „En ég verð að nefna það líka að það eru mjög margir reitir þar sem hefur tekist mjög vel til með tilliti til þessara þátta.“

Byggt hafi verið hratt og þétt - og læra þurfi af reynslunni

Umræða um ljósvist er alls ekki ný af nálinni en Ólafur segir að fyrir nokkrum árum hafi losnað um ákvæði í byggingareglugerð sem hafi verið ætlað að tryggja þessi gæði. Þess vegna hafi þurft að setja ný ákvæði í reglugerð.

Ekki hafi verið lagt mat á hversu margar nýjar íbúðir standist ekki ákvæði þessarar nýju reglugerðar. HMS vilji horfa fram á veginn. „Við erum að byggja hratt. Við erum að byggja þéttar. Við þurfum að læra af því og stilla okkur af,“ segir hann. Nú sé komin nokkurra ára reynsla af uppbyggingu á þróunarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu og það sé eðlilegt, í ljósi sveitarstjórnarkosninga, að sveitarfélög taki upp sínar áætlanir og taki afstöðu til þess hvort þurfi að endurskoða þær eða aðlaga.

Núverandi staða á íbúðamarkaði er vegna efnahagsástandsins

Stutt er síðan varað var við yfirvofandi íbúðaskorti. Nú standa 1.900 nýjar íbúðir tómar. Jónas Atli, yfirhagfræðingur HMS, segir mikilvægt að halda því til haga að núverandi staða á byggingamarkaði sé ekki vegna skipulagsmála, heldur sé hún fyrst og fremst afleiðing af efnahagsástandinu. Illa gangi að selja nýjar íbúðir á öllu suðvesturhorninu en skipulagsstefnan í sveitarfélögunum sé misjöfn. Á hinn bóginn sé ljóst að tiltekin gerð af íbúðum seljist verr en aðrar og af því megi læra.

#búa #fjölbýlishúsum #stórum #vilja #það


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-02-um-8-vilja-bua-i-storum-fjolbylishusum-en-thad-er-83-af-thvi-sem-er-byggt-488667

📰 Aðrar fréttir

Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsmálaráðherra segir að það sé eftirsjá að Herði Arnarsyni fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Ekkert sé hæ...
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
📅 02.10.2026 👁️ 0
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
Counter terror police say the further charge comes after a "hugely intensive and complex investigation".
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
📅 02.10.2026 👁️ 0
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag....
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í...
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
📅 02.10.2026 👁️ 1
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
Hákon, nýkrýndur Noregskonungur, setti norska stórþingið í fyrsta sinn í dag sem þjóðhöfðingi landsins.Við setninguna flutti hann ræðu þar sem hann sa...
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
Eyrarhlíð, vegurinn milli Hnífsdals og Ísafjarðar, er lokaður vegna aurskriðu sem féll á veginn.
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
Lögregla hefur lokað veginum um Eyrarhlíð á Vestfjörðum eftir að aurskriða féll yfir veginn. 
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
📅 02.10.2026 👁️ 1
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.Gerviverktaka eigi við þegar ein...
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að ...
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
Samkvæmt heimildum Vísis hefur einn starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar í Borgartúni fengið staðfestingu á nóróveirusmiti í dag. Þá herma heimi...
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
📅 02.10.2026 👁️ 0
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
Thomas, also known as Danny Tommo, is accused of multiple offences in Dover in the spring.
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöl...
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
📅 02.10.2026 👁️ 1
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
Diesel has now hit an average of £2 a litre in the UK, the RAC motoring group says, with petrol prices also rising.
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í mál...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
📅 02.10.2026 👁️ 2
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni Fréttin2. október 2026Aðsend grein, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. Mannfjöldaspá ...
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
📅 02.10.2026 👁️ 2
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum...
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þeirra þar sem þau fordæma viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni.  „Tilefni fundarins er sú st...
Riot police clash with students as education protests rage in France
📅 02.10.2026 👁️ 2
Riot police clash with students as education protests rage in France
More than 600 schools have faced disruption as protests over standards and lack of teachers continue.
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
📅 02.10.2026 👁️ 2
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að setja 100 milljónir tunna af olíu á markað til að stuðla að lækkun heimsmarkaðsverð á olíu.Greint var frá þessu ...
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í veikindaleyfi.Þetta kemur fram í fundargerð forsæti...
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
📅 02.10.2026 👁️ 2
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
Það er víða eldfimt í Frakklandi, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu. Eldar hafa logað nokkuð víða um landið í dag í mótmælum sem framhaldsskólanemar ...
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
📅 02.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
The woman, known as Jane Doe, alleges she was raped by seven students at a fraternity house at the university in 2024.
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
📅 02.10.2026 👁️ 0
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
The host says she is "fine" but getting checked after leaving midway through Friday's This Morning.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
📅 02.10.2026 👁️ 1
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
Vitaliy Klitschko says Ukraine's capital is in a "very dramatic situation" as Russia hits critical infrastructure.
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 2
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
📅 02.10.2026 👁️ 1
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
The defeat raises pressure on Sánchez to call a snap election, after a series of scandals affecting his party and allies.
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
📅 02.10.2026 👁️ 2
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
Bæklunarskurðlæknirinn Brian I. Neannunu hvetur fólk til að vera meðvitað um áhættur þyngdartapslyfja á borð við Ozempic, Wegovy og Mounjaro.Hann ræði...
Watch: Why students in France are protesting
📅 02.10.2026 👁️ 2
Watch: Why students in France are protesting
Demonstrations started in the French capital, then spread across the country in the days that followed.
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
Hörður Arnarson ákvað í gær að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ár í starfi, fór hann beint í frí og ætlar svo að starfa úr októb...
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
📅 02.10.2026 👁️ 2
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
Landsréttur hefur svipt hjón forsjá fjögurra barna sinna vegna langvarandi heimilisofbeldis og óforsvaranlegra uppeldisaðstæðna. Fjölskyldan kom til Í...
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
📅 02.10.2026 👁️ 2
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun Fréttin2. október 2026Björn Bjarnason, InnlentLeave a Comment Hörður Arnarson, fv. forstjóri Landsvirkjunar. Bjö...
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
Greint var frá því í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans þann 14. september að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við...
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól Fréttin2. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Haustið kemu...
Former priest Chris Brain guilty of raping and assaulting women
📅 02.10.2026 👁️ 1
Former priest Chris Brain guilty of raping and assaulting women
The leader of Sheffield's former Nine O'Clock Service movement is facing prison for abusing 13 women.
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
📅 02.10.2026 👁️ 2
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
The brigade is among 20 organisations the police have compiled evidence against since 2017.
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
Mótmæli framhaldsskólanemenda í Frakklandi vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja og lélegs skólahúsnæðis hafa staðið frá 21. september, eða í tæpar t...
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
📅 02.10.2026 👁️ 2
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
Passengers who seriously disrupt flights or behave dangerously could find themselves banned from travelling with multiple airlines under new measures ...