Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í dag. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir ríkisstjórn Pedro Sánchez forsætisráðherra landsins og gæti mögulega flýtt kosningum sem eiga að fara fram á næsta ári.
Mótmælaaldan vegna húsnæðismála fór af stað eftir að 87 ára gömul kona var borin út úr húsnæði sem hún hafði leigt áratugum saman í Madrid, þar sem hún hafði ekki lengur efni á að borga leiguna. Fjárfestingafyrirtækið sem á íbúðina dró útburðinn til baka fyrr í þessari viku. Mótmælendur hafa meðal annars komið upp tjaldborg í miðborg Madridar.
Ráðstafanirnar sem Sánchez mælti fyrir í þinginu fólu meðal annars í sér að leigusamningar myndu endurnýjast sjálfkrafa þegar þeir rynnu út og ráðstöfun til að koma í veg fyrir útburð leigjenda í viðkvæmri stöðu. Þá átti að banna útburð til ársins 2030 og setja reglur um tímabundna leigu og herbergjaleigu.
Niðurstaðan var fyrirséð eftir að flokkur aðskilnaðarsinna í Katalóníu, sem ver ríkisstjórnina vantrausti, tilkynnti í gær að hann væri á móti tillögunum. Pedro Sanchez biðlaði til þingmanna í dag að gleyma pólitískum útreikningum og styðja tillögurnar. Það gekk ekki eftir. Með mótatkvæðum Katalóníuflokksins og hægri flokkanna í stjórnarandstöðu voru tillögurnar felldar naumlega.
Niðurstaðan féll í grýttan jarðveg hjá mótmælendum sem höfðu safnast saman fyrir utan þinghúsið. Leigjendasamtök Spánar, sem staðið hafa fyrir mótmælum undanfarið, boða framhald þeirra um helgina.
Atkvæðagreiðslan verður jafnframt til þess að raddir stjórnarandstöðunnar um að boðað verði til kosninga sem fyrst verða háværari. Santiago Abascal leiðtogi Vox, flokksins lengst til hægri, sagði strax eftir þingfundinn að því fyrr sem kosningar yrðu haldnar, því betra. Pedro Sánchez hefur hingað til aftekið það með öllu.