Ógn Rússa á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er alvarleg. Þetta segir varnarmálaráðherra Kanada. Rússar beiti fjölþáttaógnum og drónum á mikilvæga innviði hér og þar. Ekkert bendi til þess að þeir dragi úr umsvifum sínum.
Öryggis- og varnarmál voru í brennidepli á lokuðum fundi varnarmálaráðherra nokkurra NATÓ-ríkja hér á öryggissvæðinu í Keflavík í morgun.
Veitir ekki af að vera með fælingarmátt og varnargetu
10 ríki koma að viðbragðssveitinni JEF og eiga það sameiginlegt að vilja bregðast fljótt við öryggisógnum og krísum í Norður-Atlantshafi og á Eystrasaltssvæðinu. Það eru Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Holland og Bretland sem fara með forystu. Á fundinum var rætt um umsókn Kanada að sveitinni og áframhaldandi stuðning við Úkraínu.
„Það veitir ekki af að vera með fælingarmátt og varnargetu á þessu svæði á þessum tímum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Hvaða ákvarðanir voru teknar á þessum fundi?
„Það er erfitt að segja frá því og greina frá því. En við erum að taka ákvarðanir um ákveðnar aðgerðir og samstarf.“
Eru nú þegar með viðveru á landinu
Þar skipti landfræðileg staðsetning Íslands miklu máli. Nýlegur samstarfssamningur Íslands og Kanada um varnarmál hafi sífellt meira vægi. David J. McGuinty, varnarmálaráðherra Kanada, segir viðveru Kanada á svæðinu munu aukast. Staðsetning Íslands sé Kanada mjög mikilvæg.
„Við erum nú þegar hér. Við höfum hér kafbátaleitarvél sem dæmi. Möguleiki er á að hermenn verði hér og meiri tækjabúnaður. Síðast en ekki síst vörðum við tíma í gær með íslenskum fyrirtækjum, sem ráða yfir tækni og framleiða búnað sem Kanada gæti nýtt sér“
Rússar slái ekki af dólgshættinum
Spurður hvort áhyggjur Kanada af ástandinu séu að aukast svarar ráðherrann játandi.
„Kanadamenn almennt hafa af þessu meiri áhyggjur en Norður-Ameríka. Kanada eflir nú tengslin við ESB og skiptir sér meira af heimsmálunum, skiptir sér meira af Evrópu, meira af Mið-Austurlöndum og er atkvæðameira á Kyrrahafi. Við erum uggandi,“ sagði McGuinty.
„Rússar virðast ekkert slá af dólgshættinum.“