Hér má horfa á beina útsendingu frá söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfellsbæ.
Brýn þörf er á uppbyggingu og markmiðið er að senda Reykjalund í eins konar endurhæfingu. Fjöldi listafólks, skjólstæðinga Reykjalundar og annars velgjörðarfólks kemur fram.
Umsjón með þættinum hafa Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Sigurður Þorri Gunnarsson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Fannar Sveinsson.