Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag.
Margir sendu fréttastofu ábendingar og hljóðuðu sumir reikningar upp á mörg hundruð þúsund krónur.
Samkvæmt gjaldskrá Vegagerðarinnar er hámarksgjald á hvert ökutæki 18.750 krónur fyrir bíla undir 3,5 tonnum en 26.250 krónur fyrir bíla sem eru á bilinu 3,5 til 7,5 tonn. Sjálfvirk gjaldtaka hófst þann 1. september.
Laufey Guðmundsdóttir á Höfn rekur fyrirtæki sem sér um skólaakstur fyrir sveitarfélagið.
„Ég er komin með í fyrirtækjabankann 494 þúsund og fjögur hundruð fyrir að mér sýnist vera skólabílarnir. Þetta eru sex reikningar 82.400 hver,“ segir Laufey.
Ekki sé þó skráð í heimabankanum fyrir hvaða bílnúmer sé verið að rukka. Þá séu einnig rukkanir fyrir hennar einkabíl fyrir ágúst sem hafi átt að vera gjaldfrjáls mánuður.
Vegagerðin segir mistök hafa verið gerð
Einar Björn Einarsson, framkvæmdastjóri á Jökulsárlóni, sagði að samtals væru reikningar til hans frá Speli upp á 8 til 900 þúsund. Hann sé með nokkra bíla skráða. Upphæðirnar séu þó langt umfram það sem búist hafi verið við.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að upp hafi komið villa. Þetta sé í fyrsta skipti sem rukkanir hafi verið keyrðar út og unnið sé að yfirferð. Nýjar færslur verði gerðar á mánudaginn. Fólk geti sent spurningar á spolur@vegagerdin.is ef þarf.
Hátt gjald burtséð frá mistökum
Laufey segir þó að burtséð frá öllum mistökum sé gjaldtakan almennt mikil.
„Fjölskylda sem býr hinum megin þrjá kílómetra vestan við fljót borgar þrjú þúsund krónur á dag fyrir að koma barninu sínu í leikskólann,“ segir Laufey.
„Ef hún þarf að fara tvær ferðir þá vitum við hvernig þetta er allt saman. Ef þú ætlar til tannlæknis, leikskóla, verslun, þá borgar þú fimmtán hundruð krónur til að komast vestur yfir brú og fimmtán hundruð krónur. Þetta er ansi vel í lagt vil ég segja.“