Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.
Gerviverktaka eigi við þegar einstaklingur sinni starfi líkt og hann væri launþegi en sé skráður sem verktaki, og njóti því ekki réttinda sem leiða af hefðbundinni ráðningu.
Í andsvörum Wolt til fréttastofu segir: „Sendlar Wolt vinna samkvæmt verksamningi þar sem sendingarþjónusta er veitt í gegnum smáforrit eða vefsíðu Wolt en þar býðst þeim að taka að sér þær sendingar sem þeir kjósa sjálfir, þegar þeir kjósa, með þeim hætti sem þeir kjósa og í þeim mæli sem þeir kjósa. Sendlum er þannig frjálst að taka eins margar sendingar og þeir vilja, eða eins fáar sendingar og þeir vilja en í því samhengi má t.d. nefna að sendlar bera enga skyldu gagnvart Wolt að veita skýringar á því ef þeir taka enga sendingu að sér yfir lengri tíma, líkt og launagreiðendur myndu gera ef launþegi myndi t.d. ekki mæta á vaktir sem hann væri skráður á. “
Því sé rangt að sambandið milli Wolt og sendlanna væri ráðningasamband frekar en samband milli verktaka og verkkaupa. Því sé ekki hægt að skilgreina sambandið sem gerviverktöku.
Fréttina sem Wolt gerir athugasemd við má sjá hér að neðan, og neðst er andsvar Wolt í heild.