Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að færa skattlagningu virðisauka baðlóna úr undanþáguprósentu í það sem almennt gerist. Þannig eru áform um að virðisaukaskattur fari úr 11 prósent í 24 prósent. Nú telst það ekki til bráðnauðsynlegra lífsverndandi athafna að baða sig utanhúss í rándýru umhverfi. Engu að síður virðist eftirspurnin eftir þeirri upplifun vera nær óþrjótandi og svo komið að þeir ferðamenn sem um landið fara eru hvað hreinastir hér á landi.
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum