Foreldrar skólabarna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla segja tímaspursmál hvenær slys verður þegar skólabíll ekur með börn þeirra um Kambanesskriður, þar sem grjóthrun er algengt. Foreldrar og börn lokuðu veginum um Kambanesskriður í klukkustund síðdegis í mótmælaskyni.
Vegir eru laskaðir eftir mikla vatnavexti sem urðu á landinu austanverðu í gær. Veðurstofan varaði við hættu á grjóthruni og skriðuföllum og ár flæddu víða yfir bakka sína. Einn þeirra vega sem skemmdust í veðrinu var Breiðdalsheiði, leiðin milli Egilsstaða og Breiðdalsvíkur, en skammt undan vöktu foreldrar athygli á hættulegum vegi um Kambanesskriður, milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur.
„Við erum að mótmæla því að Vegagerðin sé ekki að gera neitt í því að það falla skriður og snjóflóð hérna þar sem börnin okkar fara á hverjum degi,“ segir Guðný Harðardóttir, formaður foreldrafélagsins í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla.
37 nemendur eru í grunnskólanum, 16 búa á Stöðvarfirði og 21 á Breiðdalsvík. Kennt er til skiptis á Stöðvarfirði og á Breiðdalsvík, og nemendur ferjaðir milli bæja, tæpa 20 kílómetra tvisvar á dag.
Foreldrar og skólaráð hafa lengi bent á hve algengt grjóthrun sé úr Kambanesskriðum þar sem börnin fara um á hverjum degi. „Við vljum sjá skriðuvarnir eins og er fordæmi fyrir og viljum bara ekki vera að leggja börnin okkar að veði, bara til þess að komast í skólann,“ segir Guðný.
Þær Viktoría Vaka Kristinsdóttir og Þórdís Karen Bjarkadóttir segja óþægilegt að hugsa til þess að skriða gæti fallið á skólabílinn þegar þær eru á leiðinni í skólann. Þórdís Karen segist bæði kvíðin og stressuð yfir þessu. Vinkona hennar tekur í sama streng. „Bara mjög kvíðin og ekki til í að vera í rútunni þegar það er svona mikið af grjóthruni,“ segir Viktoría Vaka.