Á stjórnarfundi RÚV í gær var lögð fram bókun um að beina þeim tilmælum til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, að RÚV taki ekki þátt í Eurovision nema Ísrael verði meinuð þátttaka. Sex af níu stjórnarmönnum lögðu fram bókunina, það er meirihluti stjórnar.
Stjórnin sér sem sagt ekki um að tilkynna hvort Ísland verði með eða ekki en hefur tekið afstöðu. Hvað þýðir það?
Þessi afstaða stjórnarinnar þýðir að það er mjög ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovison.
Frestur til að tilkynna um þátttöku í keppninni er runninn út. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir RÚV ekki hafa tilkynnt þátttöku sína. Hins vegar hafi EBU gefið það til kynna að aðildarstöðvar hafi tækifæri fram eftir októbermánuði til þess að tilkynna þátttöku.
RÚV hefur ekki tilkynnt að Ísland verði með í Eurovision en ekki heldur tilkynnt að Ísland verði ekki með.
Spurður hvort RÚV muni taka þátt segir Stefán endanlega ákvörðun ekki liggja fyrir. Hún verði tekin í samráði við dagskrárstjóra.
„Dagskrártengdar ákvarðanir eru teknar af stjórnendum RÚV. Hins vegar liggur pólitísk afstaða meirihluta stjórnar fyrir í þessu máli,“ segir Stefán.