Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

Samnemendur unglings í Laugardal bundu hann og skildu eftir í kjallara fjölbýlishúss fyrr í september. Heimildir Mannlífs herma að jafnframt hafi verið sett límband yfir munn unglingsins áður en hann var skilinn þar eftir.
Mannlíf hefur rætt við íbúa í Laugardal sem segja fleiri sambærileg tilfelli hafa komið upp á svæðinu og hefur fengið annað svipað atvik staðfest en einnig hafa borist ábendingar um nokkur til viðbótar sem ekki hefur verið unnt að sannreyna.
Íbúar sem Mannlíf hefur rætt við telja mögulegt að atvikin tengist einhvers konar áskorunum sem dreifast meðal ungmenna á samfélagsmiðlum. Snúist það um að binda einstakling á máta sem hann getur ekki bjargað sér og skilja hann eftir við heimili viðkomandi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannaðist ekki við að hafa fengið sambærileg mál til meðferðar þegar Mannlíf leitaði eftir upplýsingum. Lögregla lagði þó áherslu á að háttsemi af þessu tagi geti skapað verulega hættu og jafnvel verið lífshættuleg.
Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, skólastjóri Langholtsskóla, staðfesti í samtali við Mannlíf að skólinn hefði fengið upplýsingar um eitt mál af þessu tagi. Henni væri hins vegar ekki kunnugt um að fleiri sambærileg tilvik hefðu komið til kasta skólans.
„Þegar starfsfólk skólans fékk upplýsingar um málið var brugðist við því með samtölum við viðkomandi nemendur og haft samband við foreldra þeirra,“ sagði Sigurlaug við Mannlíf um málið.
Að sögn Sigurlaugar leggur skólinn almennt mikla áherslu á forvarnarstarf og að stuðla að heilbrigðum samskiptum og góðum skólabrag. Ekki hafi þó þótt tilefni til að grípa til sérstakra ráðstafana vegna þessa einstaka máls.