Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur. Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn virðist í sjónmáli.
Drumcree-gangan hefur sérstaka þýðingu
Sólveig segir að Drumcree-gangan hafi vissulega sérstaka þýðingu af því að þarna séu mjög djúpar og sárar sögulegar ástæður sem liggi að baki. Portadown sé að meirihluta til lítill mótmælendabær, 22 þúsund manna bæjarfélag. Samsetningin hafi verið að mótmælendur séu kannski 70% og kaþólikkar 30%. Gangan hafi verið bönnuð síðustu 28 ár en leyfð aftur með úrskurði nefndar sem var komið á fót í kjölfar friðarsamkomulagsins 1998. Nefndin hafi það hlutverk að meta hvort og hvar megi fara. Nú hafi þessi ganga skyndilega verið leyfð og eigi að fá að fara í gegnum Garvaghy Road, sem sé hverfi kaþólikka í Portadown.
Hætta á að samstarf heimastjórnarinnar í Stormont leggist af
Ég er svolítið hrædd um að þetta eigi eftir að vera kornið sem fyllir mælinn þegar kemur að stjórnarsamstarfinu í Stormont og ég er ansi hrædd um að þar eigi eftir að hrikta verulega í stoðum og þessu samstarfi þannig að við fáum enn eitt tímabilið þar sem breska stjórnin verður að stjórna beint. Ég er svolítið hrædd um að það verði niðurstaðan í þessu vegna þess að það er ekki í sjónmáli augsýn hvor fylkingin ætlar að bakka. Verið er að tala um að fá inn einhverja alþjóðlega aðila inn í þetta en því miður held ég að það verði og þá sjáum við aftur fram á kannski lengra eða skemmra tímabil þar sem voðalega lítið gerist í málefnum Norður-Írlands.
Stjórnarkreppa í Svíþjóð
Rúmar þrjár vikur eru liðnar frá þingkosningunum í Svíþjóð og þar hvorki gengur né rekur að mynda nýja stjórn. Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmanna, hefur skilað umboði til stjórnarmyndunar og Andreas Norlén þingforseti hefur átt fundi með leiðtogum þingflokka en ekki falið neinum umboðið enn.