Fjölmiðlar vestanhafs lýstu yfir sigri Peltola í nótt, þar sem ljóst þykir að Peltola muni fá meira en helming atkvæða. Það felur í sér að ekki þarf að fara í aðra lotu talningar, þar sem tekið er tillit til þess hvernig kjósendur í Alaska röðuðu frambjóðendunum fjórum á kjörseðla sína.
Baráttan í Alaska var síðasta kosningin fyrir öldungadeildina þar sem sigurvegari var ekki ljós.
„Takk, Alaska. Okkur tókst þetta,“ sagði Peltola í yfirlýsingu sem hún birti í nótt.
Þá sagði hún að kjósendur hefðu gert ljóst að þeir myndu ekki sætta sig við viðvarandi ástand í Washington DC. Saman myndu þau binda enda á pólitík þar sem stjórnmálamenn leggja mesta áherslu á hag sinn sjálfir og í staðinn setja íbúa Alaska í fyrsta sætið.
We did it, Alaska! https://t.co/4bDrCCl10d
— Mary Peltola (@MaryPeltola) November 18, 2026
Peltola var áður þingkona í fulltrúadeild Bandaríkjaþings en tapaði sætinu í kosningunum 2024. Hún spilaði svo stóra rullu í vonum leiðtoga Demókrataflokksins um að ná meirihluta í öldungadeildinni.
Sjá einnig: Peltola líklegust til að sigra í Alaska
Niðurstaða kosninganna fór þó langt umfram björtustu vonir Demókrata.
Repúblikanar hlutu afhroð í þingkosningunum í byrjun mánaðarins. Þegar kemur að öldungadeildinni tóku Demókratar níu þingsæti af Repúblikönum og meðal annars í ríkjum sem þykja mjög íhaldssöm. Má þar nefna Texas, Kansas, Suður-Karólínu og Mississippi.
Demókratar tryggðu sér einnig stóran meirihluta í fulltrúadeildinni og fjölmargir Demókratar víðs vegar um Bandaríkin voru kjörnir ríkisstjórar. Meðal annars í Alaska, þar sem Demókrati verður ríkisstjóri í fyrsta sinn frá 1998.
Kjósendur í Alaska voru, eins og fleiri kjósendur víða um Bandaríkin, mjög ósáttir við háan framfærslukostnað í ríkinu og þá sérstaklega það hvað eldsneytisverð hefur orðið hátt. Margir kenndu Donald Trump forseta um það vegna tolla hans og stríðsins gegn Íran.