Vladímír Pútín Rússlandsforseti mætti til Kína í gærkvöldi. Hann og Xi Jinping, forseti Kína, funduðu í morgun þar sem Pútín var fyrir fund sagður ætla að reyna að styrkja viðskiptatengsl ríkjanna. Xi kallaði Pútín „gamlan vin“ og er talið að þeir hafi einnig rætt stríðið í Úkraínu, orkumál og samband ríkjanna við Bandaríkin. Þeir tveir hafa fundað saman um fimmtíu sinnum áður.
Donald Trump er staddur í Filippseyjum þar sem hann hefur hitt þjóðarleiðtoga Suðaustur-Asíuríkja og leiðtoga Ástralíu, Japan og Indlands. Hann mun síðan fljúga til Shenzen og funda með Jinping og Pútín.
Pútín er sagður hafa skipulagt fundinn. Þar muni leiðtogarnir reyna að komast að samkomulagi um að binda enda á stríðsrekstur Rússa í Úkraínu. Þá hefur Trump sagt að einnig verði stríð Bandaríkjanna í Íran til umræðu.
Trump virðist einnig vilja ræða kjarnorkuvopn Kínverja en þeir hafa hraðað uppbyggingu kjarnorkuinnviða og -vopna síðustu ár. Kínverjar munu vera áfjáðir í að ná viðskiptasamningi til að tryggja að tollastríð endurtaki sig ekki, en Bandaríkin vilja að stjórnvöld í Peking skapi fleiri tækifæri fyrir bandarísk fyrirtæki áður en endanlegur samningur verður undirritaður.
Erlendir sérfræðingar segja að margt verði rætt á fundinum á stuttum tíma og því sé ólíklegt að niðurstöður fundarins marki mikil tímamót.