Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá verði einnig hált nærri Selfossi og í lágsveitum Suðurlands um hádegi.
„Það er bakki að myndast yfir hlýjum sjónum suður af Reykjanesi og suður af Ölfusi. Það er búið að vera svo kalt síðustu daga og það er kuldi í jörðinni. Þar sem nær að hlána og rigna í rólegheitunum eins og horfur eru á myndar þetta vatn bara glæru á vegunum og frostrigningu,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Síðdegisumferðin gæti orðið víðsjárverð?
„Það er nú hægt að fyrirbyggja ýmislegt með hálkuvörnum en ég hef ekki síður áhyggjur af þeim sem eru gangandi eða að ganga á bílaplönum. Frostrigningin er alltaf lúmsk og er oftast ekki samfelld, hún kemur á blettum og kemur smá aftan að okkur. Við erum að vara við þessu ástandi svo fólk sé aðeins viðbúnara.“
Á umferdin.is má sjá að hálka eða hálkublettir eru víða um land. Þá er snjóþekja víða og unnið að mokstri.