Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina, ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami forsætisráðherrann sitji í fjögur ár eins og raunin er með Georgiu Meloni. Hún varð fyrsta konan til að leiða ríkisstjórn þegar hún tók við 2022 og er óskoraður leiðtogi hægriafla á Ítalíu. Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður á Gímaldinu, sem býr á Ítalíu, var gestur Heimsgluggans og þau Bogi Ágústsson ræddu ítölsk stjórnmál, efnahagslíf og horfur, mun á Suður- og Norður-Ítalíu, afstöðu ítalskra stjórnmálamanna til Evrópu og stríðsins í Úkraínu og mörg önnur mál.
Hefur mjög góð tök á bandalagi stjórnarflokka
Aðalheiður Ámundadóttir segir að Georgia Meloni hafi mjög góða stjórn á bandalagi hægriflokka sem eru í stjórn á Ítalíu. Auk flokks hennar Bræðra Ítalíu (Fratelli d'Italia) eru Lega-flokkurinn og Forza Italia í stjórninni. Lega-flokkurinn hét áður Lega Nord og er pópúlískur hægriflokkur sem sækir fylgi sitt einkum til kjósenda á Norður-Ítalíu. Leiðtogi flokksins er Matteo Salvini. Forza Italia (Áfram Ítalía) var stofnaður af Silvio Berlusconi sem var einn áhrifamesti stjórnmálamaður Ítalíu á síðustu árum 20. aldar og fyrstu árum 21. aldar. Eftir andlát Berlusconis 2023 hefur Antonio Tajani leitt flokkinn.
Eindregin stuðningsmaður Úkraínu
Aðalheiður segir að Meloni hafi komið ýmsum Evrópuleiðtogum á óvart með agaðri stjórn. Hún sé eindregin stuðningsmaður Úkraínu þrátt fyrir að margir á Ítalíu vilji minnka fjárstuðning til Úkraínu og taka upp betra samband við Rússa til að geta keypt ódýrt gas frá þeim. Futura Nazionale, nýr þjóðernissinnaður flokkur sem er mjög langt til hægri vill hætta öllum stuðningi við Úkraínu. Aðalheiður segir að helst megi líka Futuro Nazionale við Vox á Spáni. Leiðtogi flokksins er fyrrverandi hershöfðingi, Roberto Vannacci. Honum hefur verið líkt við Tróju-hest Rússa.
Fylkingar hægri- og vinstrimanna nánast jafn stórar
Aðalheiður segir að fylkingar til hægri og vinstri séu nánast jafn stórar samkvæmt skoðanakönnunum, hafi rúmlega 40 prósenta stuðning. Það skipti máli hvor fylkingin fái fleiri atkvæði vegna þess að nýbúið sé að breyta kosningalögum þannig að fái fylking meira en 42 prósent atkvæða fái sú fylking uppbótarþingmenn og nái meirihluta á þingi. Næstu þingkosningar á Ítalíu verða í síðasta lagi í desember 2027.