Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir þetta vandamál stafa af því að í heita vatninu séu náttúruleg óhreinindi á borð við möl og drullu. Þegar notkun á heitu vatni eykst á haustin skapast þrýstingur með þeim afleiðingum að óhreinindin stífla oft síur og heitt vatn skilar sér þar af leiðandi illa inn á heimili fólks.
„Þetta er þekkt vandamál og hefur verið lengi og það sem þarf að gera er að hreinsa síur. Við erum með svona síuskápa á ákveðnum stöðum þar sem þetta hefur verið mikið vandamál og erum alltaf að bæta við þá og setja síur í dælustöðvar. En svo eru síur við inntakið heima hjá fólki og það er bara oft sem þarf að hreinsa þær.“
Silja hvetur fólk til að hafa samband við Veitur ef það glímir við kulda í húsum enda eigi fólk aldrei að reyna sjálft að hreinsa síurnar. Mikil slysahætta geti skapast þegar brennandi heitt vatn sprautast í gegnum síurnar.
„Ef fólk er að fá mjög lítið vatn inn til sín þannig að það nær ekki upp hita, þá er það bara að hringja í okkur í neyðarsímann okkar og líka á netspjallinu okkar.“
Aðspurð hvort ekki sé hægt að ráðast í einhverjar útbætur á stofnlögnum svo þetta vandamál skapist ekki á hverju hausti segir Silja að vandamálið sé ekki bundið við stóru lagnirnar heldur þær litlu.
„Og þær eru eins og köngulóarvefur út um allan bæ. En við skolum úr lögnum á haustin, þá skolum við reglulega úr lögnum þar sem við vitum að vandinn er til staðar. Þetta er stórt vandamál og við erum á fullu að takast á við það. Og það er alltaf verið að bæta við svona fyrirbyggjandi aðgerðum, svona stórum síum á dælustöðvar, síum út í götu, á dreifilagnirnar þannig að við þurfum ekki alltaf að koma heim til fólks. Við erum alltaf að bæta í það.“