Leikurinn hefur slegið í gegn hjá gagnrýnendum eins og fjallað var um á Vísi í gær. Eftirvæntingin er mikil hér heima en í raun um allan heim þar sem fjölmargir óþreyjufullir spilarar geta ekki beðið eftir að kitla fjarstýtinguna. Líklega má fullyrða að eftirvænting vegna tölvuleiks hafi aldrei verið jafnmikil en hefur miklu verið kostað til og biðin verið löng.
Oddur Ævar Gunnarsson fréttamaður hittir Óla Jóels á GameTíví sem er að spila leikinn. Þeir ræða þessi tímamót ásamt því að við fylgjumst með því sem fram fer í leiknum.
Rétt er að taka fram að tölvuleikurinn er bannaður börnum innan átján ára.