Fréttir af tveimur starfsmönnum Hagaskóla sem sáust kyssast innan veggja skólans hafa vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum. Fyrrverandi nemendur skólans rifja upp ástarsambönd kennara á árum áður og furða sig á því hversu mikið mál virðist nú gert úr slíkum uppákomum.Eins og DV greindi frá í gær sendu stjórnendur Hagaskóla forráðamönnum nemenda tölvupóst vegna atviksins. Þar kom fram að starfsmennirnir tveir hefðu talið sig vera í einrúmi en sést kyssast í gegnum sandblásið gler.
Kossamálið í Hagaskóla vekur mikla athygli: „Hvaða andskotans tepruskapur er þetta?“