Margir hafa borið þetta saman við fundarhöld Roosevelts, Stalíns og Churchills í Jöltu undir lok seinni heimsstyrjaldarinnar, þar sem línurnar voru lagðar fyrir framhaldið eftir stríðið. Eins og fram kemur í grein New York Times stóðu þau fundarhöld þó yfir í rúma viku og innihéldu djúpar umræður um hin ýmsu málefni.
Þessi fundur mun standa yfir í um það bil klukkutíma, að talið er.
Fyrir fundinn hittust þjóðarleiðtogarnir fyrst hvern annan í einrúmi.
Sjá einnig: „Hann er vinur minn“
Leiðtogarnir settust niður við stórt hringborð og fluttu stutt ávörp áður en fundurinn hófst.
Xi, Putin, and Trump, at the opening of their trilateral meeting in Shenzhen, China. https://t.co/Dfa8uFOENj
— Mike Eckel (@Mike_Eckel) November 19, 2026
Áður en fundurinn hófst sagðist Xi vilja uppbyggjandi og stöðugt samband við Bandaríkin. Hann sagði að heimurinn væri ekki lengur samansafn einangraðra eyja, heldur byggju allir íbúar heimsins saman í einu þorpi, þar sem hagur þeirra allra væri samtengdur.
Xi sagði að þeir gætu lagt línurnar fyrir heiminn allan með því að tækla hnattrænar áskoranir og ýta undir frið og stöðugleika.
Xi talaði um kjarnorkuvopn sem „sverð Damóklesar“ hangandi yfir mankyninu og að þau ættu að vera alfarið bönnuð og þeim eytt.
Hann hefur hingað til ekki viljað taka þátt í samkomulögum varðandi kjarnorkuvopn, vegna þess að vopnabúr Kínverja er mun minna en vopnabúr Bandaríkjanna og Rússlands. Kínverjar hafa á undanförnum árum unnið að því að fjölga kjarnorkuvopnum sínum.
Trump þakkaði Xi fyrir að taka á móti sér og að halda góða APEC-ráðstefnu. Hann sagðist þeirrar skoðunar að fundur þeirra yrði sögulegur.
„Við þrír höfum mjög mikið að ræða og höfum þegar talað um margt.“
Þá sagði Trump að sem leiðtogar þriggja af stærstu ríkjum heims bæru þeir sérstaka ábyrgð hvað varðar það að halda samskiptum þeirra opnum.
Hann nefndi meðal annars tækifæri þeirra til að fækka kjarnorkuvopnum í heiminum og ítrekaði í senn að hann myndi ekki leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn.
Þá sagði Trump að þeir þrír myndu ræða „öll vandamál heimsins“ á fundinum. Hann sagðist einnig hafa rætt stríðið í Úkraínu við Pútín og að hann væri vongóður um að hægt yrði að binda enda á stríðið.
Fyrir fundinn sagði Trump einnig að hann myndi leggja fram tillögur að því hvernig ríkin þrjú gætu unnið saman til að verja fullveldi þeirra gegn glæpsamlegum glóbalistasamtökum eins Alþjóðaglæpadómstólnum, sem hefur ákært Pútín fyrir stríðsglæpi.
Vladimír Pútín sagði í ávarpi sínu, áður en blaðamönnum var vísað úr herberginu, að þrjú ríki þeirra hefðu borið sigur úr bítum í seinni heimsstyrjöldinni og hefðu þá sameiginlegu ábyrgð að viðhalda friði og öryggi á heimsvísu.
„Þjóðir okkar deila mörgum sameiginlegum hagsmunum varðandi lausnir á átökum og þar á meðal, auðvitað, átökunum í Úkraínu.“
Putin to Xi and Trump: "We were there at the founding of the UN, and therefore the task of preserving and strengthening the system of international law that emerged alongside the establishment of this universal organization [...] rests on our shoulders." https://t.co/bVO4ZeYR7S
— max seddon (@maxseddon) November 19, 2026