Jón var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni. Þar fór hann fyrst yfir það hvernig úttektir eru framkvæmdar í byggingum sem er verið að byggja eða laga. Hann sagði að til stæði að breyta fyrirkomulaginu og að það gæti verið til bóta.
Jón segist lengi hafa heyrt talað um það að menn kunni ekki lengur að byggja hús. Hann segir mörg svör og skoðanir á þessu en það hafi ekki verið gerðar neinar rannsóknir og því ekkert nema huglægt mat að styðjast við.
„En ég er svo sem sammála því, þetta gerðist ekki á árum áður,“ segir hann og að nú sé bæði verið að byggja of hratt og of hægt. Það sé verið að flytja inn tilbúin hús sem þarf að loka miklu hraðar þannig að það komist ekki vatn í bygginguna.
„Ef það kemst vatn þá kemst raki og mygla,“ segir hann og að dæmi um það séu turninn við Skúlagötu og Kársnesskóli í Kópavogi.
„Þetta eru einingahús sem voru flutt inn og voru ekki nægilega vel vörð.“
Greint var frá því í vikunni að félögin sem standa að uppbyggingu sautján hæða hótelturns við Skúlagötu hafa verið úrskurðuð gjaldþrota samkvæmt fyrirtækjaskrá. Byggingarsvæðinu var óvænt lokað í byrjun nóvember. Finna má myglu í næstum því öllum herbergjum í ókláruðum hótelturni að Skúlagötu 26. Fjarlæga gæti þurft herbergiseiningarnar og tjónið gæti numið tíu til fjórtán milljörðum króna. Arion banki er sagður hafa hætt fjárveitingum þegar umfang skemmdanna kom í ljós.
Jón segir á sama tíma einnig byggt of hratt. Efnin fái ekki að þorna almennilega og aðlaga sig. Áður fyrr hafi byggingameistarar verið að byggja en í dag séu það fjárfestar sem hafi önnur markmið.
„Þeir eru bara að mjólka kerfið eins vel og þeir geta, og eins hratt og þeir geta,“ segir hann og að þar hafi vaxtastigið áhrif því þeir geti ekki verið of lengi því þá verði vextirnir of háir.
Námið stytt og þekking að tapast
Hann segir að það hafi tapast þekking meðal iðnaðarmanna því námið hafi verið stytt. Lóðirnar séu dýrar og sveitarfélögin vilji ekki láta þær af hendi nema hámarka. Hann segir erfitt að snúa við þessari þróun og að byggingariðnaðurinn snúist meira um að græða en að byggja vel.
Hann segir stöðuna á byggingamarkaði erfiða og að efnahagsstaðan sé ekki góð. Hann sjái ekki að hún sé að fara að batna.
„Menn eru ekkert að reyna neitt nýtt, við erum bara að reyna að gera það sama og við erum búin að gera og hefur alltaf mistekist. Það þýðir ekki að keyra niður íbúðamarkaðinn til þess að ná niður verðbólgu, það er glatað.“