Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Pew Research Center sem hefur um árabil haldið utan um tölur hvað varðar stærstu trúarbrögð heimsins og fólksfjölda.
„Þetta eru börnin,“ segir Conrad Hackett, einn af höfundum skýrslunnar, við AP-fréttaveituna. Hann segir að trúboð og aðrar leiðir til að snúa fólki að tiltekinni trú skipti mun minna máli í stækkun trúarbragða en fæðingartölur og fjöldi barna.
Samkvæmt greiningu Pew var fæðingartíðni kvenna sem voru íslamstrúar 3,1 barn. Hjá kristnum konum var hlutfallið 2,5 börn.
Nú áætla sérfræðingar Pew að um 2,27 milljarðar manna í heiminum séu kristnir og að 2,02 milljarðar séu múslimar. Talið er að fyrir árið 2035 verði fjöldinn kominn í 2,57 milljarða múslima og 2,52 milljarða kristinna.
Haldi þessi þróun áfram yrði fjöldinn 3,6 milljarðar múslima og þrír milljarðar kristinna árið 2070.
Pew segir að á næstu áratugum muni mesta fólksfjölgun heimsins eiga sér stað í Afríku og þá sérstaklega sunnan Sahel-eyðimerkurinnar, þar sem flestir íbúar eru kristnir eða múslimar. Það er í takt við fyrri spár Sameinuðu þjóðanna sem hafa áður fjallað um mikla fólksfjölgun í Afríku.
Fyrir 2070 er áætlað að meira en helmingur kristinna í heiminum muni búa í Afríku og að Kongó muni taka við af Bandaríkjunum sem það ríki þar sem flestir kristnir búa.
Hvað varðar Evrópu telja sérfræðingar Pew að íbúafjöldi muni dragast saman um sautján prósent fyrir 2070. Fjöldi kristinna muni lækka um þriðjung, úr 505 milljónum í 324, og að hlutfall múslima í heimsálfunni muni hækka úr sex prósentum í þrettán.