Kreml hefur birt myndskeið sem sýnir þegar Vladimír Pútín yfirgefur fundarstaðinn og kveður Xi Jinping. „Takk fyrir að skipuleggja þetta,“ segir Pútín. „Ég held að enginn hafi átt von á því að allt gengi svona vel.“
Rússneski fjölmiðlamaðurinn Margarita Simonyan segir að rússneskir blaðamenn séu að búa sig undir blaðamannafund með Pútín. Nokkrar rússneskar ríkisfréttastofur segja að sameiginleg yfirlýsing leiðtoganna verði gefin út „innan klukkustundar“ og þær kínversku kalla hana „friðaryfirlýsingu“.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur einnig yfirgefið Kylin Villa-ráðstefnuhöllina og lúxushótelið. Donald Trump fór fyrstur og kominn um borð í forsetaþotuna Air Force One.
Rússneski ríkismiðillinn segir Xi Jinping Kínaforseta hafa fylgt Pútín að bíl sínum og áréttar að þeir hafi ekki boðað til sameiginlegs blaðamannafundar. Búist er við Pútín ræði við blaðamenn þegar hann kemur til dvalarstaðar rússnesku sendinefnarinnar í borginni Shenzen.
Eins og áður hefur komið fram lauk þríhlíða fundi forseta Bandaríkjanna, Rússlands og Kína laust eftir klukkan tíu. Þá höfðu þeir rætt saman bak við luktar dyr í eina og hálfa klukkustund. Þeir sögðu þó allir eitt og annað opinberlega fyrir fundinn um hvað þeim þætti brýnast að ræða.
Enn hafa ekki borist opinber viðbrögð frá leiðtogum Evrópu sem eru á fundi í Berlín. Ekki var efnt til sameiginlegs blaðamannafundar að samtali loknu og Donald Trump Bandaríkjaforsetinn er sagður á leið til alþjóðaflugvallarins í Shenzen eða kominn þangað.
Trump og Xi Jinping Kínaforseti töluðu báðir um mikilvægi þess að draga úr kjarnavopnabúri heimsins. Þrímenningarnir töluðu einnig mikið um heimsfrið og það mikilvæga hlutverk sem stórveldin hafa við að tryggja hann.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti gerði stríðið í Úkraínu að umtalsefni og allir sögðu brýnt að ljúka því. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti og fleiri ráðamenn hafa lýst miklum áhyggjum yfir að teknar verði ákvarðanir um framtíð landsins án aðkomu þeirra.
Bílalest Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur yfirgefið ráðstefnuhöllina Kylin Villa, þar sem þríhliða fundurinn var haldinn. Búist er við að Trump komi heim til Bandaríkjanna á næstu klukkustundum.
Þótt þríðhliða fundi forseta Bandaríkjanna, Rússlands og Kína sé lokið fylgjumst við áfram með framvindu mála.
Gagnrýnendur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta héldu því fram í aðdraganda fundarins að ólíklegt væri að hann sýndi festu í samskiptum við Vladimír Pútín og Xi Jinping, hvort sem væri á þríhliða fundinum eða undir fjögur augu.
Það er rökstutt með hversu lofsamlega hann hefur talað um samband sitt við forsetana tvo.
Fyrir tvíhliða fund með Xi lýsti hann samskiptum Bandaríkjanna og Kína sem frábærum. Hvað varðar tolla sagði hann að þeim hefði verið skipt upp á „mjög sanngjarnan“ hátt.
Bandarískir bændur hefðu komið vel út úr málinu, en Trump hvatti Xi þó til að gera meira fyrir bandaríska bændur með því að auka innkaup á landbúnaðarvörum.
Trump telur að „hið sérstaka samband“ þeirra, eins og hann orðaði það, sé besta leiðin til að ná árangri. „Ég held að svo lengi sem við tveir erum við stjórnvölinn muni aldrei koma upp nokkur vandamál.“
Þríhliða fundi þeirra Donalds Trump, Vladimírs Pútín og Xi Jinping er lokið samkvæmt fréttum kínverska ríkismiðilsins CCTV og rússnesku fréttastofunnar Tass. Fundurinn stóð hálfa aðra klukkustund.
Og að tengdum málum: Bandarísku erindrekarnir Jared Kushner og Steve Witkoff ætla að hitta Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta í Úkraínu og aðra evrópska ráðamenn til skrafs og ráðagerða. Kushner, tengdasonur Donalds Trump, greindi frá þessu í morgun.
Þrátt fyrir að stjórnvöld í Úkraínu og ríkjum Evrópu hafi vonast til að innrásarstríð Rússa í Úkráina yrði ekki rætt án aðkomu þeirra hefur Donald Trump sannarlega staðfest að það verði gert. Hann kallaði það stríðið milli Rússlands og Úkraínu.
Bandaríkjaforseti dró einnig þeirri staðreynd að það var Rússlandsher sem réðist á Úkraínu að skipan Pútíns. Greinendur BBC segja lykilinn að skilningi á því að Trump virðist ítrekað láta Pútín komast upp með stríði liggja í því að það hófst ekki í forsetatíð hans.
Trump hefur reyndar ítrekað haldið því fram að stríðið hefði ekki brotist út ef hann hefði verið forseti en ekki Joe Biden. Bandaríkjaforseti hefur einnig verið óspar á lof í garð Pútíns og talað vingjarnlega um hann, nefnt hann vin sinn Vladímír. Auk þess hefur líkamstjáning Trumps verið jafn hlýleg.
Donald Trump lagði talsverða áherslu á að rætt yrði um að draga úr kjarnorkuvopnabúri heimsins. Hann sagði við þá Pútín og Trump að þeir væru í kjörstöðu núna til að ræða hvernig það megi verða.
Lykilatriði væri að koma berjast gegn kjarnorkuógn og vopnasöfnun ríkja víðsvegar um veröldina. Það væri einmitt það sem Bandaríkin væru að gera gagnvart Íran. „Við ætlum ekki að leyfa Írönum að koma sér upp kjarnavopnum,“ sagði Trump.
Að því búnu sneri hann máli sínu að stríðinu í Úkraínu og sagði þá Pútín hafa rætt það ítarlega kvöldið áður. Þeir vonuðust báðir til þess að Úkraínumenn vildu ljúka stríðinu.
Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti hefur lýst áhyggjum af því að fundur leiðtoganna þriggja gæti orðið að Jaltaráðstefnu 21. aldarinnar.
Þar vísar Zelensky til fundar þar sem leiðtogar Sovétríkjanna, Bretlands og Bandaríkjanna hittust að lokinni seinni heimsstyrjöld til að ræða um skiptingu landsvæða, án aðkomu smærri ríkja. Hann hvatti Trump og Xi til að þrýsta á Pútín að binda enda á stríðið.
Fréttastofan Tass greinir áfram frá ummælum Vladimírs Pútín á þríhliða fundi hans með Trump og Xi. Hann segir að mikil ábyrgð hvíli á Rússlandi, Kína og Bandaríkjunum – sem stofnríkjum Sameinuðu þjóðanna – að efla alþjóðlegt réttarkerfi.
Pútín bendir einnig á að ríkin þrjú eigi margt sameiginlegt varðandi lausn svæðisbundinna deilumála, þar á meðal deiluna í Úkraínu, eins og hann nefndi innrásarstríðið. Hann segir að að af frumkvæði Trumps hafi mikil áhersla verið lögð stríðið, og að öll ríkin eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta við að við að finna lausn.
Alþjóðastjórnmálafræðingurinn Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir segir að leiðtogar Bandaríkjanna, Kína og Rússlands, sem funda í Kína á morgun, vilji allir móta alþjóðakerfið hver eftir sínu höfði. Hún segir þá bæði sýna styrk sinn til annarra leiðtoga en einnig til kjósenda.
Donald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína halda þennan fyrsta leiðtogafund sinn á lokadegi ráðstefnu um efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkja.
Ráðstefnan hefur staðið í viku í borginni Shenzen í Kína. Fundurinn er sögulegur, hvað sem kemur út úr viðræðunum, enda hafa leiðtogar þessara þriggja stórvelda aldrei í sögunni hist á fundi.
„Rússland, Kína og Bandaríkin geta aukið á alþjóðlegan stöðugleika með því að vinna saman á uppibyggilegan hátt,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í ávarpi sínu. Tass fréttastofan hefur eftir Pútín að ríkin þrjú eigi margt sameiginlegt, ekki aðeins sem sigurvegarar í síðari heimsstyrjöld heldur einnig vegna þeirrar ábyrgðar sem þau beri við að viðhalda heimsfriði.
Donald Trump þakkaði Xi Jinping kærlega fyrir hlýlegar móttökur og sagði mikinn heiður að vera staddur í Kína. Hann kvaðst himinlifandi yfir þeim möguleika að vera sá Bandaríkjaforseti sem heldur þríhliða fund með leiðtogum Kína og Rússlands. „Við erum raunverulega að skrifa söguna,“ sagði Trump í ávarpi sínu.
Xi Jinping Kínaforseti segir að leiðtogunum þremur bera að vera heiminum fyrirmynd með því að vinna saman að koma á friði og stöðugleika og takast í sameiningu á við þær áskoranir sem blasa við heiminum.
Forsetinn lét þessi orð falla þegar hann setti fundinn og sagði hann vera einstaklega mikilvægan. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogar þessara ríkja hittast allir á fundi.
Xi sagði jafnframt að heimurinn væri ekki lengur eins og fjöldi aðskilinna eyja heldur búi mannkynið allt í einu þorpi þar sem allir eru tengdir. Stórveldin beri sérstaka ábyrgð í því þorpi.
„Við ættum að læra af sögunni,“ segir hann, samkvæmt Reuters. „Erfiðleikar leiða í ljós raunverulega ábyrgð.“
Tímamótafundur forseta Bandaríkjanna, Rússlands og Kína er hafinn í borginni Shenzen í Kína. Ég heiti Markús Þórhallsson og ætla að fylgjast með framvindu mála á þessari fréttavakt.